Fréttir
Öskudagsskemmtun í dag
	<description>Í dag, miðvikudag, verður hin árlega öskudagsskemmtun. Öll börn velkomin og fullorðnir að sjálfsögðu líka.
Rútan kemur frá Varmalandsskóla á miðvikudaginn kl. 12:50 og kl. 13:05 ætlum við að slá „köttinn" úr tunnunni á háskólatorginu. 
Eftir það fara börnin um svæðið og syngja fyrir íbúa. Við biðjum ykkur að taka vel á móti krökkunum og ekki verra ef þið eigið eitthvað til að bjóða þeim.</description>
Miðvikudagsfyrirlestur í Hriflu: Ragnhildur Bjarkadóttir
	<description>Næstkomandi miðvikudag, þann 22. febrúar, heldur Ragnhildur Bjarkadóttir fyrirlesturinn: „Köldustu gangsterarnir“ Samningahegðun Íslendinga á alþjóðavettvangi 1997- 2007“. Fyrirlesturinn hefst klukkan 12:30 og stendur til 13:15.</description>
Málstofa í dag: Inga Hlín Pálsdóttir
	<description>Vegna veikinda þá er breyting á málstofu dagsins.  Í stað Ragnhildar Bjarkardóttur kemur Inga Hlín Pálsdóttir, en hún átti að vera í næstu viku.  Fyrirlestur Ingu ber heitið "Innblásin af Íslandi".  Fyrirlesturinn verður í Hriflu og hefst kl. 12:30.</description>
Bifröst í Norræna húsinu á Háskóladaginn
	<description>- Tónlistarhátíð í boði Bifrastar í Norræna Húsinu 
Laugardaginn 18. febrúar, kl. 12:00 - 16:00 verður Háskólinn á Bifröst með kynningardag í Reykjavík í Norræna húsinu, Sturlugötu 5.</description>
Hádegismálþing nk. mánudag: Ásmundur Þórðarson
	<description>Ásmundur Þórðarson "Eru íslensk fyrirtæki að tala við sinn rétta markhóp?"
Fjallað verður um helstu hugmyndafræði varðandi markhópa. Tilgang og markmið með því að greina neytendur í markhópa. Skoðað verður hvaða gögn er helst hægt að nýta við að greina markhópa og aðferðafræði við það. Leitast verður við að svara þeirri spurningu hvernig nýjir miðlar hafa breytt þessari vinnu og muni gera það í framtíðinni.</description>
Grein í Fbl: Menntun ábyrgra stjórnenda – ábyrgð háskóla
	<description>Í dag, miðvikudaginn 8. febrúar, birtist grein eftir Bryndísi Hlöðversdóttur, rektor.  Greinin fjallar um menntun ábyrgra stjórnenda og hvaða ábyrgð háskólar hafa að bera í þeim efnum. Við birtum þessa grein hér.</description>
Tilkynning frá LÍN: Jöfnunarstyrkur vorönn 2012
	<description>Sækir þú nám fjarri lögheimili og fjölskyldu? Kynntu þér reglur um námsstyrki og leiðbeiningar um skráningu á www.lin.is Hægt er að skrá umsókn í nemendaskrá eða í netbankanum! Umsóknarfrestur vegna vorannar 2012 er til 15. febrúar næstkomandi! Lánasjóður íslenskra námsmanna Námsstyrkjanefnd</description>
Ingibjörg Ingvadóttir í bankaráð Seðlabankans
	<description>Ingibjörg Ingvadóttir, lektor á lögfræðisviði Háskólans á Bifröst og varamaður í bankaráði Seðlabankans, var kosin á Alþingi í síðustu viku til að taka sæti Daniel Gros í sæti bankaráði Seðlabankans. Ingibjörg var sú eina sem tilnefnd var til setu í bankaráðinu. Daniel tók sæti í bankaráðinu 9. október árið 2009.</description>
Logi Geirsson með fyrirlestur á fimmtudag
	<description>Fimmtudaginn 9. febrúar kl. 18:00 mun silfurverðlaunahafinn frá Ólympíuleikunum og nemandi við Háskólann á Bifröst, Logi Geirsson, halda fyrirlesturinn: „Það fæðist enginn atvinnumaður".</description>
Fyrirlestur á miðvikudag: Katrín Oddsdóttir
	<description>Katrín Oddsdóttir, héraðsdómslögmaður heldur fyrirlestur í Hriflu nk. miðvikudag, 8. febrúar, kl. 12:00. Fyrirlesturinn ber heitið:„Það var löglegt! Hefur ákæruvaldi verið misbeitt í pólitískum tilgangi á Íslandi?"</description>
Upptaka frá útskrift og ræðu rektors
	<description>Síðastliðinn laugardag voru um 60 nemendur útskrifaðir frá Háskólanum á Bifröst, úr grunnámi í viðskiptafræði, viðskiptalögfræði og HHS (heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði) ásamt meistaranemum af öllum sviðum skólans og þá voru einnig útskrifaðir nemendur úr diplómanámi í verslunarstjórnun. Í útskriftarræðu sinni talaði Bryndís Hlöðversdóttir rektor um akademískt frelsi og sagði að það væri hugtak sem háskólar þurfa að hafa í heiðri, en í því felst m.a. að akademískir starfsmenn geti tjáð sig og stundað rannsóknir sínar óháð eftirliti eða ritskoðun stjórnvalda eða þeirra stofnana sem þeir starfa hjá. Því til stuðnings nefndi Bryndís nýlegt frumvarp til háskólalaga þar sem kæmi fram að háskólum sé skylt að virða fræðilegt sjálfstæði starfsmanna sinna. Bryndís kom inn á þjónustusamning við menntamálaráðuneytið til 5 ára sem skólinn skrifaði nýverið undir. Að lokum sagði hún frá þátttöku Háskólans á Bifröst í alþjóðlegu verkefni á vettvangi Sameinuðu þjóðanna um átak til menntunar ábyrgra stjórnenda er stóra viðfangsefnið sem við glímum við núna, en með því setti skólinn sér það markmið að stjórnendanámið okkar sé nám sem hvetji til ábyrgrar stjórnunar.</description>
Útskrift á Bifröst á laugardaginn
	<description>Næstkomandi laugardag, þann 4. febrúar verður útskrift við Háskólann á Bifröst. Athöfnin hefst kl. 14.00 og verður í Hriflu. Um 60 nemendur útskrifast úr grunnnámi og meistaranámi í háskóladeildum, ásamt nemendum í diplómanámi í verslunarstjórnun. Athöfnin tekur um klukkustund og að henni lokinni verður boðið til móttöku í Hátíðarsal skólans.</description>
Þjónustusamningur við Háskólann á Bifröst undirritaður
	<description>Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og Bryndís Hlöðversdóttir, rektor Háskólans á Bifröst, skrifuðu nú fyrir helgi undir þjónustusamning um kennslu og rannsóknir við skólann til næstu fimm ára.</description>
Háskólafundur ÍMARK
	<description>ÍMARK og viðskiptadeildir Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, Háskólans á Bifröst og Háskólans á Akureyri munu í samstarfi halda sinn fyrsta Háskólafund ÍMARK í byrjun febrúar. Tilgangur þessa fundar er að byggja brú á milli atvinnulífs og háskóla, milli fræða og praktík.
Á Háskólafundi ÍMARK verða flutt sex stutt en fjölbreytt erindi af aðilum úr háskólunum annarsvegar og aðilum úr atvinnulífinu hinsvegar. Hvert erindi tekur 10 mínútur, svokölluð örerindi, þar sem farið er yfir áhugaverð efni er tengjast markaðsmálum. Hver háskóli leggur til eitt erindi á athyglisverðum háskólaverkefnum nemenda eða kennara og einnig verða tvö fróðleg erindi úr atvinnulífinu. Rauði þráðurinn er markaðsmál.</description>
Fyrirlestur í Hriflu á miðvikudag kl. 12:00 - Finnur Sveinsson
	<description>Næstkomandi miðvikudag kl. 12:00 mun Finnur Sveinsson, sérfræðingur í samfélagsábyrgð hjá Landsbanka Íslands halda fyrirlestur í Hriflu.  Fyrirlesturinn er á ensku og er því eftirfarandi kynning á honum á ensku:  In the lecture Finnur will explore the concept of Corporate Social Responsibility, its different definitions and how different corporate cultures as well as different social, national and cultural contexts have determined how the concept of Corporate Social Responsibility is both understood and applied.</description>
Háskólinn á Bifröst markar sér stefnu um opinn aðgang
	<description>Háskólinn á Bifröst hefur sett sér það markmið að sem flestir geti notið afurða þess vísindastarfs sem unnið er innan skólans. Til þess að svo megi verða hafa starfsmenn samþykkt að birta fræðigreinar sínar í opnum aðgangi, nema til komi sérstakar aðstæður, annað hvort í gegnum tímarit sem gefin eru út í opnum aðgangi eða með safnvistun. Þá vill skólinn gera vísindagreinar ritaðar af starfsmönnum aðgengilegar og vista þær í opnum gagnagrunnum s.s. Skemmunni en þar eru lokaverkefni nemenda skólans nú þegar aðgengileg almenningi.</description>
Hádegismálþing á Hverfisgötunni hefjast aftur nk. mánudag
	<description>Næstkomandi mánudag hefjast hádegismálþingin aftur í húsnæði skólans að Hverfisgötu 4-6.  Málþingin voru mjög vinsæl fyrir jól og næstu mánudaga verður boðið upp á spennandi fyrirlestra. 
Næstkomandi mánudag kemur Pétur Jóhannes Óskarsson, rannsakandi hjá CCP og EVE Online og MA í heimspeki og fjallar um mótmælaaðgerðir og pólítískan aktivisma í sýndarheimum.
Fyrirlesturinn ber titilinn: "Pólitískar aðgerðir og mótmæli í sýndarheimum. EVE Online og Occupy Wall Street".</description>
Fyrirlestur á miðvikudag: Uppbygging á vefsvæðum og helstu leiðir í markaðssetningu á netinu
	<description>Næstkomandi miðvikudag (25.01) verður Gunnar Thorberg Sigurðsson með fyrirlestur í Hriflu.  Hvernig á að að ná árangri í markaðssetningu á netinu? Hvernig á góð vefsíða að vera? 
Farið er yfir grunnhugtök tengd viðskiptum á netinu, uppbyggingu vefsvæða og markaðssetningu á netinu. Farið er í gegnum helstu leiðir og nýjungar sem eru í boði á þessum vettvangi fyrir aðila sem vilja stunda viðskipti á netinu.  Fyrirlesturinn hefst klukkan 12:00 og eru allir velkomnir.</description>
Fyrirlestur á miðvikudaginn: Frá hugmynd til rekstrar
	<description>Kjartan Ragnarsson segir frá tilurð og þróun Landnámssetursins í Borgarnesi. Fyrirlesturinn verður í Hriflu og stendur yfir frá kl. 12:00 til 13:00.</description>
Ráðstefna um þjóðaröyggisstefnu Íslands nk. mánudag
	<description>NEXUS, rannsóknarvettvangur á sviði öryggis- og varnarmála, boðar til ráðstefnu um þjóðaröryggisstefnu Íslandsmánudaginn 16. janúar. Ráðstefnan er haldin í samvinnu við Alþjóðamálastofnun HÍ, Háskólann á Bifröst,Rannsóknarþing norðursins, Rannsóknarteymi um öryggismál og landfræðipólitík á norðurslóðum, og Norræna húsið.</description>