Fyrir börn og unglinga

 

Það er gott að alast upp á Bifröst

 

Unga kynslóðin unir sér vel á Bifröst í fallegu og öruggu umhverfi. Ýmsar hefðir hafa skapast í háskólaþorpinu sem tengjast unga fólkinu. Fjölskyldudagur er haldinn hátíðlegur í maí með skemmtilegri dagskrá fyrir börn og fullorðna. Dansað er kringum jólatré á háskólatorgi í byrjun aðventu og þar er kötturinn sleginn úr tunnunni á mikilli öskudagshátíð. Nemendafélagið efnir gjarnan til kvikmyndasýninga fyrir börnin, boðið hefur verið upp á danskennslu, tónleika og ýmsar sameiginlegar uppákomur barna og foreldra. Hátt á annað hundrað börn og unglingar búa í háskólaþorpinu á Bifröst í fjölskylduvænu umhverfi þar sem fólki líður vel.

 

Grunnskólinn á Varmalandi

 

S: 430 1500 -  kristink@gbf.is / inga@gbf.is 

Varmaland er lítill þéttbýliskjarni í um það bil tíu mínútna akstursfjarlægð frá Bifröst. Varmalandsskóli er einsetinn grunnskóli með tæplega 160 nemendur. Skólabíll ekur börnunum í skólann og heim. Mjög gott íþróttahús og sundlaug eru við skólann. Nemendur á Varmalandi sem stunda tónlistarnám við Tónlistarskóla Borgarfjarðar sækja tónlistartíma sína í tengslum við skólann. Nýir íbúar á Bifröst þurfa að sækja um skólavist fyrir börn sín. Nánari upplýsingar er að finna á vef Varmalandsskóla.

Skólastjóri á Varmalandi er Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir. 

 

 

Leikskólinn Hraunborg

 

S: 435 0077 - hraunborg@hjalli.is

 

Nemendur á Hraunborg eru u.þ.b. 40 og starfsmenn 9. Leikskólinn er rekinn af Hjallastefnunni.  Hjallastefnan hefur notið vaxandi virðingar og velgengni undanfarin ár og meðal annars hlotið viðurkenningar fyrir áherslu á jafnréttisuppeldi. Allar nánari upplýsingar má finna á vef Hraunborgar.

Nýir íbúar á Bifröst þurfa að sækja um leikskólavist fyrir börn sín.

Umsóknareyðublöð er að finna á vef Hraunborgar og þeim má skila með rafrænum hætti. Nánari upplýsingar er að finna á vef Hraunborgar.

Leikskólastjóri á Hraunborg er Bára Tómasdóttir.

 

 

Menntaskólinn í Borgarnesi

 

s: 433 7700 - menntaborg@menntaborg.is

 

Menntaskólinn í Borgarnesi var stofnaður árið 2006. Í boði er nám á fjórum brautum; starfsbraut, almennri braut, félagsfræðibraut og náttúrufræðibraut. Nemendur ljúka stúdentsprófi að jafnaði á þremur árum, þeir fá fartölvur til afnota í skóla og heima, formleg annarpróf eru ekki haldin en í stað þeirra kemur leiðsagnarmat og námsárið er að jafnaði tveimur vikum lengra en í öðrum framhaldsskólum.

Nánari upplýsingar er að finna á vef menntaskólans.

 

 

Félagsstarf

 

Gaukurinn er nafn á tómstundaaðstöðu á Bifröst fyrir nemendur í 7. - 10. bekk í Varmalandsskóla. Gaukurinn er staðsettur innan við Hátíðarsalinn. Opið verður á milli 20:00 og 22:00 á fimmtudagskvöldum. Gengið er inn utan frá við endann á hraunveggnum aftan við kaffihúsið. Umsjónarmaður Gauksins er Sindri Þór Hilmarsson og Sigurlaug Jónsdóttir.

 

Félagsmiðstöðin Hosíló er staðsett í félagsheimilinu Þinghamri, Varmalandi. Hún er starfrækt fyrir eldri nemendur skólans í tengslum við íþróttaæfingar Ungmennafélags Stafholtstungna. Starfsmaður félagsmiðstöðvarinnar sér um skipulag starfseminnar í nánu samstarfi við nemendaráð. Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Borgarbyggðar ber ábyrgð á félagsmiðstöðinni. Þar hafa nemendur aðstöðu til að stunda félagsstörf eftir að skóla lýkur og athvarf til að bíða eftir íþróttaæfingum sínum. Foreldrar sjá um að sækja nemendur er opnunartíma lýkur. Eldri nemendur skólans hafa einnig aðgang að félagsmiðstöðinni Óðali í Borgarnesi.

 

Opið er í Hosíló á þriðjudögum eftir skóla fyrir 8-10. bekk  (frjáls tími)

 

Íþróttir

Börnum úr háskólaþorpinu sem stunda íþróttir stendur til boða að taka þátt í æfingum á vegum Ungmennafélags Stafholtstungna og fara þær  fram á Varmalandi. Þá stunda allmörg börn og unglingar frá Bifröst sundæfingar á vegum sunddeildar Skallagríms í Borgarnesi.

 

Barnastarf

Kirkjulegt barnastarf fer fram á Bifröst undir stjórn Elínborgar Sturludóttur sóknarprests. Klukkan ellefu á laugardagsmorgnum er kirkjuskóli í Kringlunni og klukkan hálffimm á miðvikudögum er TTT - starf með tíu til tólf ára börnum - í Gauknum.

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri