Námsframboð á meistarastigi er í stöðugri þróun og leitast er við að bjóða upp á nám sem svarar kalli atvinnulífsins á hverjum tíma. Í dag býður Háskólinn á Bifröst upp á fjölbreytt meistaranám í öllum deildum skólans.
Boðið er upp á átta námsleiðir í meistaranámi:
Skipulag staðnáms og fjarnámsins miðast við að nemendur stundi fullt nám, eða að lágmarki 60 ECTS einingar á haust- og vorönnum . Námið hefst í júlí með fjögurra til sex vikna staðnámi á Bifröst þar sem farið er af miklum krafti í tvö eða þrjú námskeið. Í byrjun september, er svo fram haldið í fjarnámi með tveimur vinnuhelgum á haustönn á Bifröst. Haustönn lýkur í desember. Vorönn er öll í fjarnámi. Tvær vinnuhelgar eru einnig á vorönninni. Námskeiðum lýkur svo með öðrum sex vikum í staðnámi á Bifröst rúmu ári eftir upphaf náms fyrir þá sem ljúka námi með ritgerð. Þeir sem kjósa að taka námskeið í stað ritgerða sitja þau námskeið á haust- og vormisseri. Gerður hefur verið góður rómur að þessu fyrirkomulagi.
Umsækjendur og nemendur í meistaranámi athugi sérstaklega að vinnuhelgar eru óaðskiljanlegur þáttur í meistaranáminu enda er þátttaka og virkni á vinnuhelgum metin í einkunn viðkomandi námskeiðs. Því er mjög mikilvægt að nemendur mæti vel á vinnuhelgum og skipuleggi námið með tilliti til þessa.
Staðnámið er hefðbundnara með fyrirlestrum og verkefnavinnu á Bifröst. Námið skiptist á þrjár annir á árinu, haustönn, vorönn og sumarönn. Síðan áfram á haustönn þar til lokið er 90 einingum.
Umsjónarmaður meistaranáms við Háskólann á Bifröst er Maj Britt Hjördís Briem, majb@bifrost.is.
