Meistaranám í lagadeild

 

Í meistaranámi í lagadeild eru kenndar þrjár námsbrautir, nám til ML gráðu í staðnámi og meistaranám í skattarétti annars vegar og evrópskum viðskipta- og félagarétti hins vegar í fjarnámi.

 

 

ML í lögfræði

 

 

120 ECTS eininga nám til ML gráðu í lögfræði er kennt í staðnámi. Markmið námsins er að veita nemendum trausta, fræðilega þekkingu á sviði lögfræði með áherslu á að þjálfa þá í fræðilegum og hagnýtum þáttum sem snúa að lögmannsstörfum og almennum ráðgjafar- og lögfræðistörfum. Að námi loknu öðlast nemendur rétt til að þreyta próf til málflutningsréttinda.

 

 

 

MA í skattarétti/MTA í skattastjórnsýslu

 

Lagadeild Háskólans á Bifröst býður upp á meistaranám (MA) í skattarétti. Námið er sniðið að þörfum þeirra sem óska eftir að starfa að skattamálum, hvort heldur er hjá hinu opinbera eða einkaaðilum. Námið er að verulegu leyti á sviði lögfræði en einnig á sviði reikningshalds- og skattskila. Nemendur geta sótt um til deildarforseta að ljúka meistaragráðu án ritgerðar og þurfa þeir þá í samráði við deildarforseta að ljúka sambærilegum einingafjölda í tilteknum námskeiðum á meistarastigi við skólann, Í þeim tilvikum ljúka nemendur námi með MTA gráðu í skattastjórnsýslu (master in tax administration).

 

LL.M í evrópskum viðskipta- og félagarétti

 

Í júlí 2010 hefur göngu sína nýtt nám við lagadeild Háskólans á Bifröst, nám til LL.M gráðu í evrópskum viðskipta- og félagarétti. Námið er 90 einingar (ECTS), og er sérstaklega hugsað fyrir lögfræðinga og lögmenn, sem hafa nokkra starfsreynslu, en vilja styrkja stöðu sína og sérhæfa sig í Evrópurétti. Kennt verður á ensku.

 

Námið hefst með 6 vikna sumarlotu í staðnámi á Bifröst í júlí. Á haustönn og vorönn er kennt í fjarnámi, utan tveggja vinnuhelga á önn þar sem kennt er í staðnámi á Bifröst. Þá tekur við síðari sumarlota í staðnámi á Bifröst (6 vikur) og náminu lýkur svo með 30 eininga lokaritgerð.

 

Aukin alþjóðavæðing, ásamt þátttöku á innri markaði Evrópusambandsins á grundvelli EES samningsins hefur haft í för með sér að sífellt eru gerðar auknar kröfur til þekkingar á Evrópurétti meðal lögfræðinga og annarra sem starfa í viðskiptalífinu eða á opinberum markaði. Grundvallarþekking á málefnum og lagaumhverfi Evrópusambandsins er öllum mikilvæg í þessu umhverfi en sérhæfing á sviði evrópsks viðskipta- og félagaréttar skapar ótvíræða sérstöðu á vinnumarkaði.

 

LL.M gráðan er alþjóðlega viðurkennd háskólagráða á meistarastigi og tekur námið að lágmarki 18 mánuði. Inntökuskilyrði eru grunnháskólagráða í viðskiptalögfræði, lögfræði eða sambærilegt nám.

 

Inntökuskilyrði

Umsækjendur í ML nám skulu hafa lokið 180 eininga BS gráðu í viðskiptalögfræði, BA gráðu í lögfræði eða sambærilegu námi. Að lágmarki þurfa þeir að hafa að hafa lokið 120 einingum í lögfræði. Inntökuskilyrði í MA nám í skattarétti eru BA eða BS gráða eða sambærilegt háskólapróf.

 

Skólagjöld

Lánasjóður íslenskra námsmanna veitir lán fyrir skólagjöldum og framfærslu.

 

Umsóknir

Umsóknarfrestur rennur út þann 15. júní 2010.

 

Allar nánari upplýsingar veitaforseti lagadeildar, Bryndís Hlöðversdóttir, bryndis@bifrost.is og Maj Britt Hjördís Briem umsjónarmaður meistaranáms, majb@bifrost.is

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri