Boðið er upp á meistaranám í sumar- og fjarnámi. Tveir þriðju hlutar þess í fjarnámi.
Nemendum stendur til boða að velja námskeið af öðrum námsleiðum sem falla betur að áhuga þeirra auk þess sem nemendur geta valið námskeið frá samstarfsskólum Háskólans á Bifröst.
Lögð er áhersla á sveigjanlega námstilhögun; nemendur geta valið að taka 10 námskeið og ljúka náminu með 30 ECTS eininga ritgerð eða velja fimm námskeið til viðbótar í stað ritgerðar.
Kennarar koma frá erlendum háskólum, eru starfandi sérfræðingar í atvinnulífinu hver á sínu sviði eða koma úr röðum reyndustu kennara Háskólans á Bifröst
Með einstökum fjarnámsbúnaði geta nemendur í fjarnámi stundað nám sitt hvar og hvenær sem er.
Á meðan náminu stendur gefst nemendum kostur á því að fara utan í námsferð til þess að kynna sér áhugaverða hluti sem tengjast náminu.
Gott samstarf verður einnig við íslensk fyrirtæki og stofnanir.
Inntökuskilyrði
Gert er ráð fyrir að þeir nemendur sem teknir verða inn í meistaranámið hafi ýmist BS/BA gráðu í viðskiptafræði, verkfræði eða aðra sambærilega gráðu. Jafnframt kemur til greina að taka inn nemendur með háskólapróf úr öðrum greinum svo framarlega að viðkomandi geti sýnt fram á áralanga starfsreynslu í viðskiptum.
Skólagjöld
Lánasjóður íslenskra námsmanna veitir lán fyrir skólagjöldum og framfærslu.
Umsóknir
Umsóknarfrestur rennur út þann 15. desember 2009
Allar nánari upplýsingar veita forseti viðskiptadeildar, Stefán kalmansson, stefank@bifrost.is og Maj Britt Hjördís Briem majb@bifrost.is, umsjónarmaður meistaranáms, majb@bifrost.is og í síma 433 3000.