Ummæli nemenda

Tinna Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Fífu ehf.

 

„Verslunarstjóranámið á Bifröst opnar augu manns fyrir nýjum og áður óþekktum hliðum á starfinu.  Starfið verður skemmtilegra, áhugaverðara og starfsánægja eykst til muna. Skemmtilegt að geta sannreynt fræðin í vinnunni og fræðst um vinnuna í náminu.“

 

Tinna Jóhannsdóttir

Framkvæmdastjóri Fífu ehf.

 

 

 

 

Sigríður Sigurðardóttir, verslunarstjóri Samkaupa á Egilsstöðum.

 

„Ég heyrði fyrst af þessu námi þegar þáverandi vinnuveitandi minn, Kaupfélag Héraðsbúa  bauð mér þetta nám sem eins konar kaupauka. Ég auðvitað þáði það með þökkum og sé sko ekki eftir því. Fljótlega eftir að ég hóf nám þá bauðst mér staða aðstoðarverslunarstjóra. Sú staðreynd að ég var í þessu námi, hafði úrslitaáhrif á að mér var boðin þessi staða og því má segja að námið hafi breytt lífi mínu til batnaðar. Ég mæli með þessu námi fyrir alla sem hafa áhuga á að starfa innan verslunargeirans.“

 

Diplómanám í verslunarstjórnun fer að mestu fram í fjarnámi og hentar þannig mjög vel þeim sem eru búsettir á landsbyggðinni og vinna verslunarstörf. Stór hluti nemendanna er búsettur á landsbyggðinni og mætti þar t.d. nefna Ísafjörð, Akureyri, Húsavík, Skagaströnd, Hveragerði og Egilsstaði þar sem Sigríður býr.   „Fjarnámskerfið á Bifröst er svakalega gott og hentar mér mjög vel. Maður er háður tölvu og Interneti en getur sinnt náminu hvenær sem manni hentar best.  Ég vinn öll hópverkefni með fólki sem býr allt annars staðar á landinu. Við vinnum í gegnum Internetið með hjálp tölvupósts og msn. Ég nýti kvöldin þegar barnið er komið í háttinn til að læra. Ég er að eyða ca. 2-4 tímum á viku til að hlusta á fyrirlestra og vinna verkefni en ég átti í raun von á að þetta væri tímafrekara. Námið er einskonar brú fyrir mig til að halda síðan áfram að mennta mig en ég er ekki með stúdentspróf. Ég er staðráðin í að halda áfram námi og ljúka frumgreinadeildinni á Bifröst en diplómanám í verslunarstjórnun er metið inn í frumgreinadeildina. Þannig get ég lokið því sem samsvarar stúdentsprófi.“

 

 „Námið er byrjað að gagnast mér alveg helling í starfi. Maður fær allt aðra sýn á hvað er í gangi, hvernig hlutirnir virka. Það breytti miklu fyrir mig þegar ég byrjaði í náminu, ég fékk fljótlega stöðuhækkun, er nú aðstoðarverslunarstjóri og þar hafði mikið að segja að ég er í þessu námi, skipti í raun sköpum. Þetta hefur algjörlega umturnað mínu lífi.“

 

Sigríður Sigurðardóttir, Egilsstöðum

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri