Markaðsfræði - fjarnám

Markaðsfræði - fjarnám

 

Símenntun Háskólans á Bifröst býður upp á 6 vikna námskeið í markaðsfræði í fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í 6 vikur og hefst með vinnuhelgi á Bifröst 1.-2. október 2010.

Kennari er Magnús Bjarni Baldursson, formaður SÍA, Sambands íslenskra auglýsingastofa. 

 

Lýsing

Á námskeiðinu er m.a. fjallað um eftirtalda þætti :

 

  • Grundvallarhugtök markaðsstarfs og almennt um stefnumótun markaðsmála
  • Markaðsumhverfið almennt séð og í alþjóðlegu samhengi 
  • Neytenda- og kaupendahegðun
  • Markaðsstarf milli fyrirtækja, stofnana og félaga (B2B)
  • Markaðsrannsóknir og nýting þeirra í markaðsstarfi
  • Markaðsaðgreining og staðfærsla
  • Að efna til langtímasambands við viðskiptavininn
  • Samkeppni
  • Merki og umbúðalausnir
  • Vöruþróun og stjórnun líftíma vöru
  • Stefnumótun í verðlagningu og verðmyndun
  • Samþætt boðmiðlun, auglýsingar, söluhvatar og almannatengsl
  • Markaðssetning þjónustu
  • Bein markaðssókn
  • Stjórnun boðmiðlunar eftir samskiptaleiðum
  • Markaðsmál, samfélagið og siðfræði í markaðsmálum og auglýsingum

 

Unnin verða raunhæf verkefni, bæði í hópum og einstaklingsverkefni.

 

Eftir námskeiðið eiga nemendur að:

  • Skilja mikilvægi markaðsfræðinnar í viðskiptum
  • Skilja lykilatriði markaðsfræðinnar
  • Skilja lykilatriði sölumála
  • Geta framkvæmt markhópagreiningu

 

 

 

 

 

 

 

 

Kennslufyrirkomulag

Glærur, upptökur og annað efni verður sett tvisvar í viku inn á Námskjá, fjarnámsvef Háskólans á Bifröst og er hægt að hlýða á það hvenær sólahringsins sem er. Námsmat byggist á verkefnum.

 

 

Þátttökugjald er kr. 55.000 og innifalið í því er gisting og fæði á vinnuhelgi.  

Nánari upplýsingar og skráningu annast Geirlaug Jóhannsdóttir, verkefnastjóri símenntunar, í síma 433-3015, geirlaug@bifrost.is

 

  

 

 

  

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri