Máttur kvenna II er framhald námskeiðsins Máttur kvenna. Eins og fyrr er um að ræða þriggja mánaða rekstrarnám fyrir konur sem hefst og lýkur með vinnuhelgi á Bifröst.
Námið sjálft er fjarnám sem fer fram í gegnum fjarnámsvef Háskólans á Bifröst.
Boðið er upp á Mátt kvenna II á vorönn 2012. Námið hefst þá með vinnuhelgi á Bifröst 24.-25. febrúar og lýkur í byrjun maí með formlegri útskrift á Bifröst.
Þátttökugjald er 115.000 krónur. Innifalið í verðinu er kennsla í fjarnámi, 2 vinnuhelgar, gisting og matur.

| Máttur kvenna I og II að vori 2010 |
|
Markmið
Markmiðið með þessu námskeiði er að auka en frekar hæfni og þekkingu kvenna í atvinnurekstri. Auk þess að undirbúa nemendur fyrir almennan rekstur smærri fyrirtækja, er lögð áhersla á að viðhalda og efla tengslanet kvenna.
Námsgreinar
Eftirtaldar námsgreinar verða kenndar í Mætti kvenna II:
Bókhald II
Viðskiptaenska
Skattur
Rekstrarhagfræði
Samningatækni
Mannauðsstjórnun
Fyrirkomulag námsins
Námið tekur alls 12 vikur í fjarnámi en það hefst og því lýkur með sameiginlegum vinnuhelgum á Bifröst. Á fyrri vinnuhelginni er áhersla á nýsköpun og frumkvöðla. Fyrirkomulag fjarnámsins verður með þeim hætti að sendir verða út fjórir fyrirlestrar í hverri grein, auk þess sem skila þarf verkefnum. Nemendur geta hlustað á fyrirlestrana þegar þeim hentar og þar sem þeim hentar. Náminu lýkur svo með annarri vinnuhelgi og útskrift á Bifröst. Gera má ráð fyrir að verja þurfi u.þ.b. 10 klst. á viku í námið.
Nánari upplýsingar um Mátt kvenna II veitir verkefnastjóri símenntunar, Geirlaug Jóhannsdóttir, í síma 433 3015 eða með tölvupósti: geirlaug@bifrost.is.
 |
|
Útskriftarhópur í Mætti kvenna II 28. maí 2011 |