Rekstur smærri fyrirtækja - RSF
Auknar kröfur um aukið hagræði í rekstri og skilvirka þjónustu fyrirtækja kalla á haldgóða menntun rekstraraðila. Háskólinn á Bifröst býður eigendum og rekstraraðilum smærri fyrirtækja upp á sérhæft nám sem svar við þeirri þörf sem skapast hefur á þeim markaði sem smærri fyrirtæki starfa á. Námið hentar rekstraraðilum sem starfa á fjölbreyttum sviðum, s.s. í hvers konar iðnaði, sjávarútvegi, ferðaþjónustu og menningarstarfsemi.
Rekstur smærri fyrirtækja (RSF) er nám sem unnt er að stunda samhliða vinnu. Námið er hagnýtt og nýtist því frá fyrsta degi í fyrirtækjarekstri. Boðið verður upp á RSF á haustönn 2012. Þátttökugjald er 257.000 kr. Fræðslusjóðir stéttarfélaga veita flestir styrki til niðurgreiðslu á skólagjöldum.
Námsgreinar sem boðið er upp á í RSF
- Upplýsingatækni / Bókfærsla I
- Markaðsmál / Viðskiptaenska I
- Rekstur og bókhald
- Stjórnun og samstarf / Bókfærsla II
- Gæðamál, þjónusta og sala / Enska II
- Innkaup og vörustjórnun
Nemendur í RSF geta valið 6 námsgreinar eftir áhugasviðum hvers og eins. Nemendur ávinna sér með náminu einingar á framhaldsskólastigi sem geta nýst síðar í áframhaldandi námi.
 |
| Útskrift RSF nemenda vorið 2008 |
Fjarnám og vinnufundir
Á vinnufundinum fá nemendur kennslu á fjarnámsvef Háskólans á Bifröst ásamt því að fyrstu fyrirlestrar og verkefni eru unnin undir leiðsögn kennara. Kennslan fer þannig fram að haldnir eru vinnufundir á Háskólanum á Bifröst, síðari hluta föstudags eða fyrri hluta laugardags, fimmtu til sjöundu hverja viku. Þess á milli eru fyrirlestrar aðgengilegir á fjarnámsvef Háskólans á Bifröst og er hægt að hlýða á þá hvenær sólarhringsins sem er og þegar þér hentar. Verkefni tengd umfjöllunarefninu eru einnig aðgengileg á fjarnámsvefnum. Námsmat er byggt á verkefnavinnu og prófi í lok kennslu. Fjarnámskerfi Háskólans á Bifröst er eitt það besta sem þekkist.
Ummæli nemanda í rekstri smærri fyrirtækja.
Nánari upplýsingar veitir Geirlaug Jóhannsdóttir, umsjónarmaður RSF-námsins, í síma 433 3015 eða geirlaug@bifrost.is
