Sterkari stjórnsýsla

Háskólinn á Bifröst býður upp á nám fyrir stjórnendur í sveitarfélögum. Námið er miðað að sviðsstjórum og  forstöðumönnum stofnana, s.s. safna, íþróttamiðstöðva, félagsmiðstöðva, sambýla. Námið hentar einnig stjórnendum grunnskóla, leikskóla og tómstundaskóla og öðrum stjórnendum með mannaforráð í stjórnsýslunni.

 

Kennsla fer fram í fjarnámi auk þriggja vinnuhelga á Bifröst yfir námstímann (föstudagur og laugardagur).

Þátttökugjald er kr. 180.000. Innifalið er gisting og fæði á vinnuhelgum.

Námið hefst með vinnuhelgi á Bifröst 21.-22. september 2012. Umsóknarfrestur rennur út 15. júní.

 

 

 

 

 

 

 

Námsgreinar

  • Mannauðsstjórnun og hlutverk stjórnandans
  • Stjórnsýsluréttur
  • Siðfræði og samfélag
  • Mótun framtíðarsýnar og innleiðing breytinga
  • Fjármál og áætlanagerð

 

 

Markmið

Markmiðin með náminu eru að auka þekkingu, hæfni og leikni stjórnenda innan sveitarfélaga  til þess að takast á við krefjandi starfsumhverfi og auka samvinnu þeirra í milli. Námið fer fram í fjarnámi og með vinnulotum á Bifröst og spannar 12 vikna tímabil. Engar forkröfur um grunnmenntun eru gerðar til þátttakenda.

 

 

Að námstíma loknum eiga nemendur að:

  • Hafa þekkingu á ýmsum sviðum stjórnunar, geta skilgreint hlutverk stjórnenda og tekist á við siðfræðilegar spurningar tengdar störfum sínum.
  • Vera í stakk búnir til þess að takast á við og stjórna breytingum í starfsumhverfi sínu og móta framtíðarsýn.
  • Geta skilgreint og metið fjárhagslegan árangur sinna starfsstöðva og borið hann saman við önnur sveitarfélög. Einnig eiga nemendur að vera færir um að gera framtíðaráætlanir út frá mismunandi forsendum.
  • Hafa öðlast og geta hagnýtt sér í daglegum störfum grundvallarþekkingu á þeim lögum og reglum sem tengjast starfssviði þeirra, svo sem á sviði stjórnsýsluréttar og vinnuréttar. Þetta felur í sér að geta greint lagaleg viðfangsefni og þekkja þær grundvallarreglur sem gilda um úrlausn og ennfremur að geta metið hvenær viðfangsefni eru þess eðlis að skynsamlegt sé að leita eftir sérfræðiaðstoð fyrr en seinna.
  • Hafa eflt samstarfsnet sitt og færni í  að þróa hugmyndir með öðrum stjórnendum innan sveitarfélaga.

 

Námsfyrirkomulag

Ein námsgrein er kennd í einu og spannar hver lota 1-3 vikur. Fyrirlestrar eru 3-6 í hverju námskeiði og eru birtir á fjarnámsvef skólans samkvæmt kennsluáætlun hvers námskeiðs. Þar að auki eru kennslustundir á vinnuhelgum þar sem lögð verður áhersla á hópavinnu nemenda. Gert er ráð fyrir að fyrirlestrar komi inn tvisvar í viku, á mánudögum og miðvikudögum, sjá nánar í  dagskrá.

 

Námsmat er í formi verkefnaskila og lokaverkefna eftir atvikum.  

 

 

 

Nánari upplýsingar veitir verkefnastjóri símenntunar:

Geirlaug Jóhannsdóttir geirlaug@bifrost.is og í síma 433-3015.

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri