Viðskiptafræði BS-BBA

Áhersla á nýsköpun og frumkvöðlastarf

Grunnnám í viðskiptafræði er alhliða viðskiptanám sem ætlað er að búa nemendur undir ábyrgðar-, forystu- og stjórnunarstörf í innlendu og alþjóðlegu samkeppnisumhverfi. Boðið er upp á allar helstu greinar viðskiptafræðinnar þ.e. fjármál, stjórnun og markaðsmál, auk almennra námsgreina. Námið er að mestum hluta á íslensku en nemendum býðst einnig að taka stök námskeið á ensku með erlendum skiptinemum. Einnig geta nemendur dvalið eina önn í skiptinámi við erlendan samstarfskóla Háskólans á Bifröst.

 

Sérstaða

Viðskiptafræðinám á Bifröst byggir á nýsköpunar- og frumkvöðlanálgun. Frá upphafi gefst nemendum kostur á að þróa hugmyndir sínar og vinna með þær í verkefnavinnu á meðan á náminu stendur. Síðasti hluti námsins miðar sérstaklega að því að styrkja nýsköpun og gefst nemendum kostur á að ljúka náminu með lokaverkefni í formi viðskiptaáætlunar.

 

Nám á Bifröst

Fyrstu tvær annir grunnnáms á Bifröst taka nemendur í öllum línum að miklu leyti sömu námskeið. Þannig byggja allir á sama þverfaglega grunni, sem reynist góð undirstaða þegar að aukinni sérhæfingu kemur í framhaldinu. Í öllu námi á Bifröst er lögð rík áhersla á að nemendur geti annars vegar unnið sjálfstætt að úrlausn krefjandi verkefna og hins vegar unnið í hópi samnemenda að rannsóknum og úrlausn stærri verkefna, kynnt þau og lagt í dóm kennara og samnemenda. Lögð er áhersla á gagnrýna hugsun og hagnýta tengingu við raunhæf verkefni sem eru fleiri og umfangsmeiri en almennt gerist við háskóla hér á landi.

 

Framvinda og námslok

Nám til grunngráðu tekur yfirleitt þrjú ár. Á Bifröst gefst nemendum kostur á að ljúka námi á skemmri tíma þar sem sumarnám er hluti reglulegs náms. Nemendur geta því lokið 80 ECTS einingum á ári í stað 60. Þannig er hægt að ljúka námskeiðum að mestu leyti á tveimur árum, en á þriðja ári gera nemendur lokaverkefni auk þess að ljúka einingum sem eftir eru með starfsþjálfun eða valnámskeiðum. Náminu má því ljúka á tveimur og hálfu ári.

 

Inntökuskilyrði

Til að geta innritast í námið þurfa nemendur að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun t.d. úr frumgreinadeild Háskólans á Bifröst.

 

Umsjón með náminu: Sigurbjörn Einarsson, sviðsstjóri, sigurbjorn@bifrost.is 

Skipulag náms til BBA prófs í viðskiptafræði

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri