Byggt á reynslu og þekkingu viðskiptalífsins
Tvær fjarnámslínur eru í boði í grunnnámi, hefðbundið viðskiptanám til BS gráðu og BS nám með áherslu á markaðssamskipti, sem skipulagt er í samstarfi við SÍA – Samband íslenskra auglýsingastofa og ÍMARK.
Í báðum línum er markmiðið að búa nemendur undir störf í atvinnulífinu með þjálfun sem byggir á mikilli verkefnavinnu. Rík áhersla er lögð á að nemendur geti annars vegar unnið sjálfstætt að úrlausn krefjandi verkefna og hins vegar unnið í hópi samnemenda að rannsóknum og úrlausn stærri verkefna. Mikil áhersla er lögð á gagnrýna hugsun og hagnýta tengingu við raunhæf verkefni sem eru fjölbreytt og umfangsmikil. Fjölbreytt viðfangsefni, umræður og samstarf nemenda og kennara m.a á vinnuhelgum á Bifröst tryggir nemendum góðan undirbúning fyrir ábyrgðarstöður í íslensku atvinnulífi. Kennarar við deildina eru góð blanda af öflugum rannsakendum og sérfræðingum úr atvinnulífinu sem miðla nemendum af víðtækri reynslu sinni og þekkingu.
Sérstaða
Öflugur fjarnámsbúnaður gerir nemendum kleift að stunda nám í viðskiptafræði hvar sem er. Fyrirlestrar eru aðgengilegir á vef skólans og geta nemendur nálgast þá þegar þeim hentar og hlustað á þá í tölvunni eða hlaðið þeim niður á WMV eða Ipod, eftir því hvað hentar hverjum og einum.
Í hverju námskeiði er boðið upp á vinnuhelgi sem er að jafnaði í 3 - 4. viku þess. Vinnuhelgar eru mikilvægur þáttur í fjarnáminu á Bifröst. Þær eru notaðar til fyrirlestra, verkefnavinnu og samskiptaþjálfunar. Mikil áhersla er lögð á að nemendur hagi skipulagi sínu þannig að þeir geti mætt á vinnuhelgar og tekið fullan þátt í kynningum, gagnrýnni umræðu og öðru sem fram fer.
Sérstaða í kennsluháttum Bifrastar felst meðal annars í svokölluðum misserisverkefnum sem unnin eru í 4-6 manna hópum. Nemendur eiga að vinna þrjú slík verkefni í náminu, þ.e. eitt í lok hverrar haustannar. Verkefni eru oft unnin í samvinnu við fyrirtæki, sveitarstjórnir, opinberar stofnanir og aðra aðila utan skólans og eru varin fyrir dómnefnd tveggja kennara ásamt hópi nemenda. Þeir nemendur sem þess óska geta nýtt sér starfsþjálfun sem nemendum býðst á öllum sviðum atvinnulífisins.
Framvinda og námslok
Skipulag fjarnáms til BS-gráðu miðast við að nemendur stundi fullt nám í fjarnámi, þ.e. ljúka 60 ECTS á skólaárinu (30 ECTS á önn). Hvert námskeið er 2 - 6 ECTS einingar og hver námsgrein tekur að meðaltali 4 - 6 vikur og lýkur með prófi eða lokaverkefni. Þannig er gert ráð fyrir að nemendur geti lokið náminu á þremur árum. Skólaárið í fjarnámi hefst í ágúst og lýkur í júní.
Inntökuskilyrði
Til að geta innritast í námið þurfa nemendur að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun t.d. úr frumgreinadeild Háskólans á Bifröst.
Umsjón með fjarnámi í viðskiptafræði: Guðrún Björg Aðalsteinsdóttir, gudrunbjorg@bifrost.is
Skipulag náms til BS prófs í viðskiptafræði
Skipulag náms til BS prófs í viðskiptafræði með áherslu á markaðssamskipti
