Laganám með tengingu við rekstur
Grunnnám til BS gráðu í viðskiptalögfræði er sett saman úr greinum á sviði lögfræði, viðskipta- og rekstrarfræði auk almennra greina er lúta að aðferðafræði félagsvísinda. Á fyrsta misseri er lögð áhersla á að nemendur kynnist grundvallaratriðum ólíkra fræðasviða með það fyrir augum að þjálfa þá í víðsýni og skilningi á samspili lögfræðinnar við aðrar greinar félagsvísinda og gera þá betur í stakk búna til að takast á við verkefni á sviði stefnumótunar og rekstrar sem í eðli sínu eru þverfagleg. Á síðari misserum færist áherslan yfir á grunngreinar lögfræðinnar ásamt þeim greinum sem sérstaklega tengjast viðskiptum og rekstri.
Sérstaða
Nám í viðskiptalögfræði er eina nám sinnar tegundar hérlendis en á sér fyrirmynd í víða í nágrannalöndum okkar þar sem slík þverfagleg blanda lögfræði og viðskiptafræði er velþekkt og vinsælt nám. Í upphafi sögðum við sem
svo að við vildum þjálfa lögfræðinga sem kynnu að reikna eða stjórnendur sem kynnu skil á lögfræði, eftir því hvernig horft er á málið. Þetta á jafnvel við nú og þá. Námið hefur á hinn bóginn tekið breytingum og þróast í takt við breytingar í samfélaginu og innan skólans.
Nám á Bifröst
Fyrstu tvær annir grunnnáms á Bifröst taka nemendur í öllum línum að miklu leyti sömu námskeið. Þannig byggja allir á sama þverfaglega grunni, sem reynist góð undirstaða þegar að aukinni sérhæfingu kemur í framhaldinu. Í öllu námi á Bifröst er lögð rík áhersla á að nemendur geti annars vegar unnið sjálfstætt að úrlausn krefjandi verkefna og hins vegar unnið í hópi samnemenda að rannsóknum og úrlausn stærri verkefna, kynnt þau og lagt í dóm kennara og samnemenda. Lögð er áhersla á gagnrýna hugsun og hagnýta tengingu við raunhæf verkefni sem eru fleiri og umfangsmeiri en almennt gerist við háskóla hér á landi.
Framvinda og námslok
Nám til grunngráðu tekur yfirleitt þrjú ár. Á Bifröst gefst nemendum kostur á að ljúka námi á skemmri tíma þar sem sumarnám er hluti reglulegs náms. Nemendur geta því lokið 80 ECTS einingum á ári í stað 60. Þannig er hægt að ljúka námskeiðum að mestu leyti á tveimur árum, en á þriðja ári gera nemendur lokaverkefni auk þess að ljúka einingum sem eftir eru með starfsþjálfun eða valnámskeiðum. Náminu má því ljúka á tveimur og hálfu ári.
Inntökuskilyrði
Til að geta innritast í námið þurfa nemendur að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun t.d. úr frumgreinadeild Háskólans á Bifröst.
Umsjón með náminu: Helga Kristín Auðunsdóttir, helgakristin@bifrost.is
