Kennarar

 

Kennarar við lögfræðisvið

 

 

 

Helga Kristín Auðunsdóttir, sviðsstjóri lögfræðisviðs

helgakristin@bifrost.is

 433 3000 / 699 7409

 

Helga Kristín tók við starfi sviðsstjóra lögfræðisviðs áramótin 2011 - 2012. Hún lauk ML gráðu í lögfræði frá Háskólanum á Bifröst árið 2006. Árið 2009 hlaut hún Cobb Family Fellowship-styrk til framhaldsnáms við Miami háskóla og útskrifaðist með með LL.M gráðu í alþjóðalögum vorið 2010. Að loknu námi starfaði hún sem gestaprófessor við lagadeild Miami háskóla, þar sem hún kenndi evrópskan félagarétt og samkeppnisrétt. Áður starfaði hún sem lögfræðingur hjá Stoðum hf. og Greiðsluveitunni.

 

Aagot Vigdís Óskarsdóttir

aagot@bifrost.is

433 3000

 

Cand. jur. frá Háskóla Íslands árið 2001. Lögfræðingur hjá dómsmálaráðuneyti 2001–2002, umboðsmanni Alþingis frá 2002–2006 og sérfræðingur við Lagastofnun Háskóla Íslands 2006–2008. Á síðustu árum hefur Aagot unnið að ýmsum verkefnum, m.a. fyrir rannsóknarnefnd Alþingis, iðnaðarráðuneyti og umhverfisráðuneyti, hún hefur setið í ýmsum nefndum, verið álitsgjafi og unnið að undirbúningi og smíði lagafrumvarpa. Aagot var stundakennari við lagadeild Háskóla Íslands 2006–2008 og hóf stundakennslu við Háskólann á Bifröst 2009. Hún tók við fastri stöðu við skólann í janúar 2012. Sérsvið Aagotar eru eignaréttur, auðlindaréttur, umhverfisréttur og stjórnsýsluréttur.

 


 

 Ástráður Haraldsson, dósent

astradur@bifrost.is

 511 1199

 

Cand. jur. frá Háskóla Íslands árið 1990. Sjálfstætt starfandi lögmaður í Reykjavík frá 1992. Meðfram lögmennsku í hlutastarfi sem lögmaður og forstöðumaður vinnuréttarsviðs Alþýðusambands Íslands árin 1995-2000. Meðfram lögmennsku í hlutastarfi sem dósent við Háskólann á Bifröst frá 2002. Hefur sem lögmaður rekið mikinn fjölda mála fyrir dómstólum m.a. á annað hundrað mála fyrir Hæstarétti. Prófdómari í vinnurétti við lagadeild HÍ frá 2000 - 2004. Stundakennari í vinnurétti við lagadeild HÍ 2000 og 2004.


Bryndís Hlöðversdóttir, dósent

bryndís@bifrost.is  

433 3064 / 699 3414

 

Cand. jur. frá Háskóla Íslands árið 1992. Starfaði um skeið hjá dómsmálaráðuneytinu að loknu námi og síðar sem lögfræðingur Alþýðusambands Íslands til 1995, þegar hún var kjörin á Alþingi. Sat á Alþingi til ársins 2005, fyrst fyrir Alþýðubandalagið og síðar Samfylkinguna, þingflokksformaður hennar um skeið.  Hefur sinnt stundakennslu við Háskólann á Bifröst frá árinu 2004 en var ráðin forseti lagadeildar árið 2005 og gegndi því starfi til 5. janúar 2011 er hún var ráðin rektor við skólann.  Aðstoðarrektor Háskólans á Bifröst frá árinu 2006 til 2011. Bryndís hefur aðallega kennt stjórnskipunarrétt á Bifröst og helstu rannsóknir eru á því sviði, um eftirlit Alþingis með framkvæmdavaldi og samskipti þessara tveggja handhafa ríkisvaldsins. Bryndís er formaður stjórnar Landsvirkjunar og situr í stjórn Landnámsseturs Íslands. Hún hefur áður setið í fjölda stjórna og nefnda á vegum ríkis og sveitarfélaga, meðal annars til undirbúnings ýmis konar löggjafar og stefnumótunar.

 


Einar Karl Hallvarðsson, dósent

einarkarl@bifrost.is

 sími: 863 2811

 

Cand. jur. frá Háskóla Íslands árið 1993.  Skipaður ríkislögmaður í september 2011 og hafði áður verið settur ríkislögmaður frá desember 2010. Lögmaður við embættið frá 1994, en starfaði áður hjá yfirskattanefnd.  Fékk málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi 1994 og fyrir Hæstarétti 1997. Hjá embætti ríkislögmanns hefur hann meðal annars sinnt málflutningi jafnt fyrir héraðsdómi, Félagsdómi og Hæstarétti í ýmis konar málum, þ.á m. um stjórnskipunarrétt, stjórnsýslurétt, skattamál, réttindi ríkisstarfsmanna og skaðabótarétt af margvíslegum toga. Hefur annast kennslu við Háskólann á Bifröst frá árinu 2004, fyrst sem aðjúnkt en verið dósent frá 2007. Helstu kennslugreinar hans eru einkamálaréttarfar og stjórnskipunarréttur. Einar Karl hefur um árabil kennt á námskeiði til öflunar málflutningsréttinda fyrir héraðsdómi og haldið námskeið á vegum Lögmannafélags Íslands.


Elín Blöndal, prófessor

elinblondal@bifrost.is

433 3108 / 822 6127

 

Cand jur. frá Háskóla Íslands 1992, LL.M í þjóðarrétti frá Háskólanum í Leiden 1996. Hefur starfað sem  lögfræðingur í nefndadeild Alþingis, deildarstjóri vinnumála í félagsmálaráðuneytinu og skrifstofustjóri hjá umboðsmanni Alþingis. Hefur setið í og stýrt fjölmörgum nefndum og ráðum, bæði hér á landi og í alþjóðlegu samstarfi. Situr í sérfræðinganefnd framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á sviði vinnuréttar, vinnuhópi Evrópusamtaka vinnuréttarlögfræðinga (ELLN), stjórn vinnuréttarfélags Íslands og stjórn Íslandsdeildar norræna stjórnsýslusambandsins. Forstöðumaður Rannsóknaseturs vinnuréttar frá 2005 og prófessor við lagadeild Háskólans á Bifröst frá 2008.  Höfundur fjölmargra greina, bókarkafla, álitsgerða og frumvarpa. Sérsvið Elínar eru einkum vinnuréttur, kynjajafnrétti, mannréttindi og stjórnsýsluréttur. Hún hefur einnig stýrt stórum þverfaglegum verkefnum, s.s. verkefninu um Jafnréttiskennitöluna og stýrir ráðgjafarhóp í alþjóðlegu verkefni sem fjallar um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja og kynjajafnrétti.


Guðmundur Thorlacius Ragnarsson

gudmundur@bifrost.is

433 3000

 

Cand jur. frá Háskóla Íslands 1996, hdl. réttindi 2008, LL.M. frá Westfälische Wilhelms Universität í Münster í Þýskalandi 1997 og Dr. jur. frá sama háskóla 2007. Starfaði við embætti ríkisskattstjóra, Fjármálaráðuneytinu, Fjármálaeftirlitinu og LEX lögmannsstofu. Frá nóvember 2010 hefur hann starfað sem lögfræðingur á lögfræðisviði Arion banka. Guðmundur hefur gegnt embættum formanns og gjaldkera Sambands íslenskra námsmanna erlendis og setið í stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna fyrir hönd SÍNE. Guðmundur var stundakennari við Háskólann á Bifröst 2003 til 2007 og hefur kennt einstök námskeið á meistarastigi við skólann. Helstu kennslugreinar hans eru Evrópuréttur og Verðbréfamarkaðsréttur. Guðmundur hefur hefur um árabil ásamt fleirum sinnt kennslu og haft umsjón með prófi á námskeiðinu „Lög og reglur um fjármagnsmarkaðinn" á vegum prófnefndar verðbréfaviðskipta.

 


 

Ingibjörg Þorsteinsdóttir, dósent

ingibjorg@bifrost.is

433 3000 / 694 1915

 

Cand jur. frá Háskóla Íslands 1992, hdl. réttindi 1995, diplóma í viðskipta- og rekstrarfræði 1995, og MSc í starfsmannastjórnun frá Strathclyde University í Glasgow árið 2000. Var blaðamaður um nokkurt skeið meðfram laganámi og fulltrúi sýslumannsins í Kópavogi um skeið. Hóf störf í fjármálaráðuneytinu haustið 1992, var fulltrúi ráðuneytisins í sendinefnd Íslands hjá Evrópusambandinu 1995-1997. Sat í fjölmörgum nefndum á vegum ráðuneytisins, m.a. samninganefnd um tvísköttunarsamninga 1997-1999. Var starfsmannastjóri hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum í eitt ár en hóf störf við Háskólann á Bifröst í ágúst 2001. Var deildarstjóri og síðar forseti lagadeildar 2002-2005, dósent í apríl 2004. Rannsóknir og kennsla snúast um almenna lögfræði, réttarheimspeki og skattarétt, einkum reglur alþjóðlegs skattaréttar. Ráðin deildarforseti lagadeildar í byrjun árs 2011.

 


Maj-Britt Hjördís Briem, aðjúnkt

majb@bifrost.is

 433 3017

 

Hefur lokið BS gráðu í viðskiptalögfræði og ML gráðu í lögfræði frá Háskólanum á Bifröst.  Stundaði nám við University of Lüneburg. Öðlaðist málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi vorið 2010.  Með stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík og stundaði nám í íslensku og bókmenntafræði við Háskóla Íslands. Maj-Britt starfaði um árabil hjá líftryggingadeild Sjóvá-Almennra trygginga, Samlíf,  sem aðalgjaldkeri og með yfirumsjón sparnaðarlíftrygginga og lífeyrissparnaðar Samlífs.  Maj-Britt starfaði við Rannsóknarsetur vinnuréttar og jafnréttismála samhliða meistaranámi. Maj-Britt er aðjúnkt við lagadeild Háskólans á Bifröst og aðalkennslugrein hennar eru Almenn lögfræði.


 Ingibjörg Ingvadóttir, lektor

ingibjorging@bifrost.is

 433 3067 / 891 9009

 

Cand. jur. frá Háskóla Íslands og hdl. Stundaði nám í sagnfræði, ensku og dönsku við HÍ og Syddansk Universitet. Ingibjörg starfaði um árabil hjá skattyfirvöldum, fyrst í launþegadeild, atvinnurekstrardeild og virðisaukaskattsdeild skattstjórans í Reykjavík og síðar sem deildarstjóri og staðgengill forstöðumanns á virðisaukaskattsskrifstofu ríkisskattstjóra. Var í námsvist hjá dönskum skattyfirvöldum og situr í stjórn Skattaréttarfélags Íslands og sem varmaður í bankaráði Seðlabankans. Ingibjörg er lektor við lagadeild Háskólans á Bifröst og aðalkennslugreinar hennar eru almenn lögfræði og skattaréttur.


                                          

Sigurður Arnalds, dósent

sarnalds@bifrost.is  

 433 3060 / 899 3320

 

Cand. jur. frá Háskóla Íslands árið 1993. Málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 1994 og fyrir Hæstarétti árið 2005. Sigurður hefur m.a. starfað sem lögmaður BYKO hf., lögmaður á tjónasviði Vátryggingafélags Íslands og sem sjálfstætt starfandi lögmaður. Stundakennari við lagadeild Háskóla Íslands 1995 – 2002 og við lagadeild Háskólans í Reykjavík 2003 – 2004. Sigurður hefur starfað við lagadeild Háskólans á Bifröst frá árinu 2005, í fyrstu sem aðjúnkt en sem dósent frá árinu 2007. Helstu kennslugreinar hans eru samningaréttur, félagaréttur og hugverkaréttur. Sigurður hefur setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja og átt sæti í áfrýjunarnefnd hugverkaréttinda á sviði iðnaðar frá árinu 2003.


Sigurður Líndal, prófessor

lindal@bifrost.is

 433 3000

 

BA í latínu og mannkynssögu 1957, cand. jur. 1959 og cand. mag. (M.A)-próf í sagnfræði 1968. Lagði stund á réttarsögu við Háskólann í Kaupmannahöfn 1960, við Háskólann í Bonn 1961-62 og við University College í Oxford 1998 og 2001.

Dómarafulltrúi við embætti Borgardómara í Reykjavík 1959-60 og 1963-64. Hæstaréttarritari 1964-72. Lektor við lagadeild Háskóla Íslands 1967, prófessor 1972-2001. Gistiprófessor við University College í London haustið 1982. Í skattsektanefnd 1965-79. Dómari í Félagsdómi 1974-80. Forstöðumaður Lagastofnunar Háskóla Íslands 1976-2001. Forseti Hins íslenzka bókmenntafélags 1967 og síðan. Í stjórn Stofnunar Árna Magnússonar 1996-2006 . Ráðunautur landstjórnar Færeyja í sjálfstæðismálum 1997-2000. Ritstjóri Sögu Íslands 1972 og síðan. Í ritstjórn Nordisk administrativt tidsskrift 1984-99. Ritstjóri Skírnis (ásamt Kristjáni Karlssyni) 1984-86. Prófessor við Háskólann á Bifröst 2007 og síðan. Stundakennari við lagadeild Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri.

Höfundur ritsmíða á sviði lögfræði, sagnfræði og stjórnmálafræði.


 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri