QuestionPro Online Survey Software notendavænt og einfalt netkannanaforrit fyrir vefkannanir og kannanir sendar með tölvupósti. Býður upp á allt frá einfaldri úrvinnslu á borð við tíðnitöflur og hlutföll til flóknari tölfræðiúrvinnslu, t.d. Conjoint og TURF greiningu.
Vinsamlegast lestu skilmálana og leiðbeingar hér að neðan, áður en þú skráir þig.
Ef hlekkurinn hér að ofan virkar ekki er hægt að skrá sig á eftirfarandi slóð:
http://www.questionpro.com/akira/university.do?id=bifrost.is
Háskólinn á Bifröst er samstarfsaðili QuestionPro um að veita nemendum og starfsfólki á Bifröst aðgengi að netkannanakerfi QuestionPro til kennslu og náms, þeim að kostnaðarlausu.
Aðgengi nemenda og starfsmanna
Nemendur og starfsmenn skrá sig sjálfir með eigið notendanafn og aðgangsorð. Til þess að skrá sig verður hver notandi að skrá netfang sitt frá Háskólanum á Bifröst, sem endar á bifrost.is. Allir nemendur, hvort sem þeir eru í fjarnámi, staðnámi, fullu námi eða hlutanámi geta skráð sig, auk kennnara og starfsfólks Háskólans.
Skilmálar
- Nemendur og starfsmenn verða að vera með netfang og skrá netfang sitt frá Háskólanum á Bifröst.
- Leyfið gildir í 1 ár í senn. Tölvupóstur verður sendur frá QuestionPro 30 dögum áður en leyfið rennur út.
- Ekki er leyfilegt að nota þetta fría aðgengi í verkefnum sem eru kostuð af öðrum, hvort sem það eru einkaaðilar, stofnanir eða styrkir.
- Nemendur og starfsfólk verða að vera skráð í Háskólann á Bifröst eða starfa þar.
- Hver notandi getur einungis notað eitt aðgengi. Ekki er leyfilegt að sami notandi skrái sig með tvö eða fleiri leyfi með mismunandi netföng. Ef notandi verður uppvís að slíku, verður lokað fyrir aðgengi hans á QuestionPro.
- Háskólinn á Bifröst skuldbindur sig til að upplýsa nemendur og starfsfólk um skilmála fyrir notkun á fríu aðgengi að QuestionPro.
- Að minnsta kostir 10 notendur þurfa að skrá sig innan 30 daga á fyrsta mánuði samstarfs við QuestionPro og að minnsta kosti 30 innan fyrstu þriggja mánaða.
- Taka skal fram í skýrslum og öðru rituðu efni þar sem niðurstöður úr netkönnun eru kynntar að QuestionPro hafi verið notað við gagnaöflun (kafli um aðgerðabindingu / rannsóknaraðferð).
Brot á einhverju af ofangreindu skilyrði leiðir til þess lokað verður fyrir aðgengi einstakra notenda.
Annað
- Aðgangur að QuestionPro er ótakmarkaður, þar með talin tölfræðileg úrvinnsla eins og conjoint analysis, TURF analysis, tilviljunarröðun og fleira.
- Engin takmörk eru á fjölda kannana eða svara.
- Engin takmörk eru á fjölda spurninga eða gagna.
- Þar sem aðgengið er frítt, er ekki hægt að fá einstaklingsaðstoð frá QuestionPro. Ef notandi biður um einstaklingsaðstoð, hvort sem er í gegnum síma eða með tölvupósti til QuestionPro, verður hann beðin um að skrá sig fyrir leyfi sem er borgað fyrir.
- Samstarfsamningur Háskólans á Bifröst og QuestionPro er til eins árs í senn. Endurnýjun á samstarfi er háð samþykki beggja aðila.
Frekari upplýsingar um aðgengi að Free QuestionPro Licenses
MicroPoll Web Poll Software kannanir sem setja má upp endurgjaldslaust og á auðveldan hátt á blogg- og heimasíðum. HTML kóði og Web Poll Script fylgir.
Nánari upplýsingar veitir Eva Heiða Önnudóttir við Rannsóknarmiðstöð Háskólans á Bifröst - evaheida@bifrost.is