Bókasafnið er til húsa á fyrstu hæð í Hamragörðum.
Sími: 433 3099
bokasafn@bifrost.is
Afgreiðslutími bókasafnsins:
Mánudaga til fimmtudaga kl. 10.00 - 17.00 og kl. 20.00 - 22.00
föstudaga kl. 10.00 - 17.00
laugardaga kl. 12.00 - 14.00
Lesaðstaða
Í Hamragörðum er lestrarsalur með 32 lesbásum.
Hlutverk
Hlutverk bókasafnsins er að styðja rannsóknir, nám og kennslu með því að safna efni á fræðasviðum skólans og gera það aðgengilegt. Stefnt er að því að nemendur og starfsfólk Háskólans á Bifröst eigi greiðan aðgang að efni og upplýsingum úr alþjóðlegu háskóla- og rannsóknasamfélagi.
Skólinn á nokkuð safn íslenskra og þýddra bóka. Þá má nefna tvo sérsöfn, söfn þeirra Jónasar Jónssonar frá Hriflu og Guðmundar Sveinssonar fyrrverandi skólastjóra.
Háskólabókavörður tekur ákvarðanir um bókakaup í samvinnu við kennara. Aðrir notendur hafa tillögurétt og geta lagt fram hugmyndir um aðföng.
Tímarit og fréttabréf berast safninu reglulega og aðgangur að rafrænum tímaritum eykst stöðugt. Ekki er gert ráð fyrir að tímarit séu fjarlægð af safni nema til ljósritunar. Ljósritunarvélar eru á safninu og kort í þær fást þar.
Starfsfólk
Andrea Jóhannsdóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur, veitir bókasafni háskólans forstöðu
Ásta Guðbjörg Rögnvaldsdóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur er í 50% starfi.
Uppfært ágúst 2011