Þjónusta

 

Útlán

 

Safnið er opið starfsfólki og nemendum Háskólans á Bifröst sem og öðrum íbúum háskólaþorpsins.

Lánstími gagna er hálfur mánuður en lánþegar geta endurnýjað lánið ef efnið hefur ekki verið pantað af öðrum.

Handbækur (orðabækur, alfræðiorðabækur og uppflettirit af ýmsu tagi) eru eingöngu ætluð til notkunar á bókasafninu og sama máli gegnir um tímaritin sem þar er að finna.

 

Fjarnemar

Leitast er við að veita fjarnemum við háskólann eins hraða og góða þjónustu og hægt er.  Best er að þeir sendi fyrirspurnir til bókasafnsins á netfangið bokasafn@bifrost.is.  Þjónusta við þá felst meðal annars í að senda í pósti  efni úr safninu eða útvega í millisafnalánum efni sem safnið á Bifröst á ekki. Öllum nemendum skólans er boðið upp á notendafræðslu við upphaf náms á Bifröst. Markmið notendafræðslunnar er að nemendur og kennarar öðlist leikni í upplýsingalæsi og tileinki sér sjálfstæð og heiðarleg vinnubrögð við heimilda- og upplýsingaleit.

Þeir sem þurfa aðgang að gagnasöfnum bundnum við aðgang frá tölvum skólans eða innan netsvæðis hans, geta haft samband við netstjori@bifrost.is og fengið frekari leiðbeiningar. 

 

Millisafnalán

Með millisafnalánum er átt við það þegar bókaverðir útvega rit sem bókasafnið á ekki, annaðhvort ljósrit eða ritin sjálf frá öðrum söfnum, innlendum eða erlendum. Mikil áhersla er lögð á hraða millisafnalánaþjónustu á Bókasafni Háskólans á Bifröst, og reynt að sinna öllum beiðnum innan sólarhrings frá því þær berast.

Þessi þjónusta er veitt án endurgjalds, enda litið á hana sem hluta af skólagjöldum nemenda. Til þess að þjónustan sé skilvirk er notendum ráðlagt að athuga sjálfir hvort viðkomandi rit finnist í Gegni áður en þeir fara fram á millisafnalán og sendi sem bestar upplýsingar um: 

 

  • Greinar
    • fullan titil tímarits, eða staðlaða skammstöfun, ár, bindi, hefti, höfund, titil greinar, blaðsíðutal og ISSN-nr ef það er vitað.
  • Bækur
    • höfund/ritstjóra, titil, útgáfu, útgáfustað, útgáfuár og ISBN-nr. 

 

Greinar og bækur sem fengnar eru  innanlands frá berast yfirleitt innan viku, en greinar og rit erlendis frá tekur oft margar vikur að útvega.  Að meðaltali má segja að það taki u.þ.b. hálfan mánuð að útvega efni frá útlöndum.

 

Lánstími millisafnalána

Algengur lánstími frá innlendum og erlendum söfnum er þrjár til fjórar vikur.  Stundum er mögulegt að fá lánstíma framlengdan en beiðni um slíkt þarf að hafa borist starfsfólki bókasafns áður en lánsfresturinn rennur út. Það er ákaflega mikilvægt að skilafrestur bóka sem fengnar eru í millisafnaláni sé virtur og nokkuð háar fjársektir liggja við glatist bók sem fengin er með þessum hætti.

 

Senda má beiðni um millisafnalán á netfangið: 

bokasafn@bifrost.is 

  

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri