Leigutakar eru beðnir að yfirfara húsnæði innan 24 tíma og senda athugasemdir í verkbeiðni ef húsnæðið þarfnast viðhalds. Sendið póst innan 24 tíma á husnaedi@bifrost.is ef þrifum er ábótavant. Taka verður þá þrifin út að nýju.
Þeir sem leigja húsnæði með húsbúnaði eru vinsamlegast beðnir um að afrita og fara yfir gátlista og skrá ef eitthvað vantar. Merkið íbúð og sendið listann í tölvupósti á husnaedi@bifrost.is
Gátlisti yfir húsbúnað
Við tökum 1-2 daga í að taka til það sem vantar, tímalengd fer eftir því hvenær listinn berst og hvað er til á lager.
Við sendum svo viðkomandi tölvupóst um það hvenær má sækja dótið í kassa við línherbergið í kjallara Hamragarða.
Ef þrifum er ábótavant vinsamlegast sendið tölvupóst á husnaedi@bifrost.is svo hægt sé að koma og meta ástand íbúðar/herbergis.
Gátlisti vegna þrifa
Leigutakar fá 1-2 daga til að flytja milli einstaklingsíbúða og 3-4 daga milli fjölskylduíbúða.
Uppsögn á húsnæði
Leigutakar eru beðnir að senda uppsögn á húsnæði í tölvupósti á netfangið husnaedi@bifrost.is. Takið fram nafn, húsnæði og númer (herbergisnúmer) ásamt brottfarardegi. Uppsagnarfrestur er einn mánuður og miðast við næstu mánaðamót. Dæmi: Ef sagt er upp um miðjan nóvember þá greiðir leigutaki út desember en gæti farið út á tiltekinni dagsetningu í janúar án þess að greiða út janúar.
Úttektir
Úttekt á húsnæði á að fara fram á dagvinnutíma - hringja skal fyrir kl. 11:00 í s: 695 8908. Síðasta úttekt er almennt ekki seinna kl. 15:30.
Við skil á húsnæðinu biður leigutaki um úttekt á húsnæðinu og framkvæmir fulltrúi leigusala úttekt á því að leigutaka viðstöddum eða fulltrúa hans.
Skil án úttektar ef allt er í lagi 5.000 kr.
Úttekt á húsnæði utan dagvinnutíma 5.000 kr. og er háð því að starfsfólk vilji taka slíkt að sér.
Þrif á kostnað leigjanda samkvæmt reikningi 3500 kr. pr. klst.
Ef hlífðardýnum er ekki skilað, hreinum, við úttekt þá verður leigutaki rukkaður um 3000 kr. Ef ruslafötu vantar er rukkað um kr. 1000. Ef leigt er með húsbúnaði og það vantar húsbúnað eða húsbúnaður er skemmdur er rukkað samkvæmt kostnaðarverði á markaði hverju sinni.
Athugið!
Herbergi eða íbúð telst ekki skilað fyrr en úttekt á þrifum hefur farið fram, sameign þar með talið þar sem það á við. Sjá þjónustugjaldskrá.
Klaudia, Karolina og Gosia, starfsmenn húsnæðissviðs, sjá um úttektir.
Úttektarsíminn er 695-8908.
Sandra Björk Jóhannsdóttir
Umsjónarmaður húsnæðis
Síðast uppfært 7. febrúar 2012.