Líðan og heilsa

Láttu þér líða vel

Til þess að hámarka árangur okkar og frammistöðu, hvort heldur sem er í námi, starfi eða einkalífi þurfum við að vera í góðu formi, jafnt líkamlegu sem andlegu.

 

Öllum sem er annt um hamingju sína og velferð þurfa að vera vakandi fyrir eigin líðan, hlúa að henni og bregðast við ef líðanin er ekki sem skyldi.

 

Um það bil fjórðungur Íslendinga upplifir einhvern tíma á lífsleiðinni geðræna örðugleika. Samt er það svo að yfir þeim hvílir oft skuggi leyndar og skammar. Fólk er oft ekki tilbúið til að viðurkenna fyrir sjálfum sér né að segja öðrum að það þjáist af kvíða, þunglyndi eða öðrum andlegum erfiðleikum. Að sama skapi er fólk oft hikandi við að leita sér aðstoðar hjá fagfólki, finnst það jafnvel skammarlegt að þurfa utanaðkomandi hjálp vegna andlegrar líðunar en auðvitað ætti það að vera jafn sjálfsagt og að leita til læknis vegna líkamlegra kvilla.

 

Við megum ekki gleyma að líkami og sál eru samofnir og órjúfanlegir hlutar okkar og rannsóknir hafa sýnt að ef andleg heilsa bilar birtist það oft í líkamlegum einkennum og öfugt. Til þess að okkur líði vel líkamlega þarf andlegt jafnvægi að koma til. Á sama hátt þurfum við að hlúa að líkamlegri heilsu ef við viljum ná andlegri vellíðan.

 

Hér getur að líta nokkra tengla inn á vefsíður sem geta verið gagnlegar þegar kemur að því að rækta geðheilsuna.

Nemendum á Bifröst er jafnframt bent á náms- og starfsráðgjafa vegna ráðgjafar á þessu sviði. Netfangið er: toby@bifrost.is og marin@bifrost.is

 

Nánari upplýsingar um ráðgjöfina finnurðu hér.

 

Gangi þér vel!

 

www.persona.is

Ýmis konar fræðsluefni auk prófa sem hægt er að taka á vefnum. Efnisflokkar eru m.a. kvíði og fælni, þar sem prófkvíði er ítarlega útskýrður, þunglyndi, fíkn, geðklofi, kynlíf, átraskanir og samskipti.

 

www.ged.is

Heimasíða Geðræktar, samstarfsverkefni Landlæknisembættisins, geðsviðs Landspítala, Heilsugæslunnar í Reykjavík og Geðhjálpar.

Þar er að finna “Geðorðin 10”, fræðsluefni um ýmsar geðraskanir, geðlyf og fleira gagnlegt. Þar eru ennfremur mýmargir góðir tenglar.

 

www.gedhjalp.is

Upplýsingar undir liðnun “geðraskanir” um geðhvörf, þunglyndi, kvíða, geðklofa, áráttu og þráhyggjuröskun, persónuleikaraskanir og átraskanir.

 

www.doktor.is

Læknisfræðilegur vefur sem inniheldur margvíslegar upplýsingar, s.s. um geðheilsu, líkama og næringu, forvarnir og lyf auk þess sem hægt er að taka ýmis konar sjálfspróf á vefnum.

 

www.aa.is

Heimasíða AA samtakanna á Íslandi. Ýmis konar upplýsingar, fróðleikur og hugleiðingar um áfengisvandann. M.a. spurningalisti sem hjálpar þér að meta þína áfengisneyslu.

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri