Úrræði í námi vegna fötlunar eða sértækra námsörðugleika
Háskólinn á Bifröst leitast við að veita jöfn tækifæri til náms, óháð kynferði, aldri, efnahag, fötlun eða búsetu, eins og fram kemur í stefnu hans og reglugerð. Hér eru tilgreind þau úrræði sem skólinn hefur upp á að bjóða fyrir nemendur sem búa við fötlun eða aðra hömlun sem hindrar þá í námi. Úrræðin miða að því að jafna aðstöðu og tækifæri fólks til náms, þar sem tekið er sanngjarnt tillit til fötlunar eða sérþarfa fólks við nám og prófun. Úrræðin fela á engan hátt í sér að dregið sé úr eðlilegum námskröfum.
Skilyrði fyrir sérúrræðum er að fyrir liggi greining viðeigandi sérfræðings á fötlun eða sérþörfum.
Hér er um almennan ramma að ræða en þarfir fólks eru ólíkar og því eru úrræðin að sama skapi einstaklingsmiðuð. Þannig er hvert tilvik metið sérstaklega.
Skilgreiningar
Með fötlun er hér átt við andlega eða líkamlega fötlun, samkvæmt skilgreiningu í 2. gr. laga nr. 59/1992 um málefni fatlaðra.
Með sérþörfum / hömlun er hér átt við sértæka námsörðugleika og hamlanir sem hljótast af slysum, langvinnum veikindum eða af öðrum orsökum.
Hvert skal leita?
Náms- og starfsráðgjöf skólans hefur yfirumsjón með sérúrræðum og skal nemandi sem óskar eftir slíku gefa sig fram við námsráðgjöf. Vegna allra sérúrræða skal nemandi skila inn greiningu eða vottorði frá þar til bærum aðila, fyrir tilskilinn tíma, til námsráðgjafa.
Ef um sérúrræði á námstíma er að ræða, þarf að skila vottorði/greiningu að minnsta kosti viku fyrir upphaf kennslu.
Ef um sérúrræði í prófum er að ræða skal skila inn vottorði í síðasta lagi mánuði fyrir fyrsta próf.
Sé greiningu/vottorði skilað eftir þennan tíma er ekki öruggt að náist að ganga frá sérúrræðum. Því er áríðandi að nemendur virði þessi tímamörk.
Skriflegt samkomulag
Þegar þarfir og úrræði liggja fyrir er gert um þau skriflegt samkomulag á milli nemanda og námsráðgjafa.
Helstu úrræði sem í boði eru:
Í námi
- Stuðningsviðtöl við námsráðgjafa
- Námskeið um vinnulag og viðhorf
- Aukinn sveigjanleiki hvað varðar námsframvindu
- Skönnun námsefnis og talgervill
Í prófum
- Lengri próftími, við hvern klukkutíma er bætt 15 mínútum.
- Meira næði, sérstofa fyrir nemendur með lengri próftíma, mögulega einvera ef nauðsyn krefur.
- Stækkuð eða lituð prófblöð
- Munnleg próf
- Hvíld í prófi án skerðingar á próftíma
Að auki má nefna að flest próf eru tekin á tölvu á Bifröst og allir fyrirlestrar, þ.e. glærur kennara, eru aðgengilegir á rafrænu formi.
Málsmeðferð
Námsráðgjöf tekur við greiningum og metur í samstarfi við nemanda og ábyrgðaraðila námsins sem um ræðir þörf nemanda og möguleika á úrræðum. Komi upp álitamál, vegna kröfu um úrræði sem annað hvort er óhefðbundið eða verður illa við komið, er málinu vísað til deildarfundar sem afgreiðir málið. Viðkomandi námsráðgjafi skal hafa rétt til setu á fundi þeim sem tekur málið fyrir. Almennt gildir sú regla að ekki þarf samþykki deildar eða kennara vegna sérúrræða, nema að þau krefist þess að starfsfólk deilda komi að úrræðunum með beinum hætti, t.d. þegar nemandi þarf að taka munnlegt próf í stað skriflegs.
Skólanum er heimilt að synja nemendum um sérúrræði liggi það fyrir með óyggjandi hætti að námið sé þess eðlis að nemandanum sé ókleift að uppfylla stærstan hluta þeirra krafna sem gerðar eru í náminu.