Hvernig skal skrá tölvur

Vinsamlegast athugið! Þið getið skráð vélarnar ykkar heima hjá ykkur í gegnum heimasíðuna hér að ofan áður en þið komið á svæðið, og þá þurfið þið ekki að gera það hér á staðnum og sleppið lið nr. 1.

 

1. Byrjað skal á því að tengjast þráðlausa netinu í skólabyggingunni og velja netið Gestir. Það net er öllum opið og þarf ekki lykilorð til þess að tengjast, en er með miklum notkunartakmörkunum. Ekki vista þetta net í tölvunni ef spurt er að því við tengingu.

 

2. Síðan er farið inná skráningarsíðuna hér http://www.bifrost.is/islenska/thjonusta/tolvuthjonusta/  þar sem nemandinn skráir sig inn með sama notendanafni og lykilorði og notað er á innranet skólans. Þá birtist síða sem veitir aðgang að skráningu á mac addressu ( svokallað physical address ) vélarinnar.  Ath. að hvert netkort hefur mac addressu og það þarf að skrá þau netkort sem ætlunin er að nota. Ef nota á bæði þráðlaust net og snúrunet, þá þarf að skrá mac addressu beggja netkortana.


Þetta er svo endurtekið fyrir snúrunetkortið ( Local Area Network adapter )


3. Finna Mac addressu vélarinnar.


Til þess að finna mac addressu á netkorti, þá er best að ýta á START/RUN (í windowsXP) eða START/SEARCH (í Windows Vista/Windows7), skrifa CMD í gluggann og ýta á ENTER. Í svarta gluggann sem kemur upp er skrifað IPCONFIG /ALL og ýtt á ENTER. Þá koma á skjáinn upplýsingar um IP tölur og Physical Address á öllum kortum í vélinni og lítur einhvernveginn svona út: ( dæmi um þráðlaust netkort, wireless lan adapter )


                 Windows IP Configuration


 Wireless LAN adapter Wireless Network Connection:


    Media State . . . . . . . . . . . : Media connected


    Connection-specific DNS Suffix  . :


    Description . . . . . . . . . . . : Intel(R) WiFi Link 5300 AGN


    Physical Address. . . . . . . . . : 00-21-6A-1C-B5-07


    DHCP Enabled. . . . . . . . . . . : Yes


    Autoconfiguration Enabled . . . . : Yes


Þá á að skrá rauðu tölurnar, og sett strik eða tvípunkur á milli með tveggja stafa bili eins og sést hér fyrir ofan ( ef mac addressan birtist ekki sjálfvirkt í glugganum ) og velja „Skrá Tölvu“.


Athugið að skráningin verður virk á næsta heila tíma eftir skráningu. Eftir það,  þarf að aftengjast þráðlausa netinu Gestir og tengjast þráðlausa netinu Nemendur. 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri