21. maí 2010
Háskólinn á Bifröst mótmælir harðlega hugmyndum prófessora við ríkisháskóla
Háskólinn á Bifröst mótmælir harðlega þeim hugmyndum Félags prófessora við ríkisháskóla að Háskóli Íslands taki yfir kennslu Háskólans á Bifröst. Nám við Háskólann á Bifröst einkennist af mikilli verkefnavinnu og fámennum námskeiðum þar sem lögð er áhersla á hvern nemanda. Að halda því fram að best sé að kenna mörg hundruð manns í einu í Háskólabíó eins og gert er í Háskóla Íslands er fráleitt og sýnir að prófessorar við ríkisháskóla gera lítið úr gæðum háskólanáms. Flestar námsleiðir við Háskólann á Bifröst eru ekki kenndar við aðra háskóla hérlendis, eins og t.d. viðskiptalögfræði, heimspeki/hagfræði/stjórnmálafræði (HHS), alþjóðafræði, menningarstjórnun og stjórnun heilbrigðisþjónustu. Nemendum frá Bifröst hefur vegnað vel í atvinnulífinu og átt auðvelt með að fá vinnu vegna þeirrar sérstöku kennslufræði sem er við skólann. Rekstur Háskólans á Bifröst er hagkvæmur og skólinn á gott samstarf við aðra háskóla. Ríkisvaldið greiðir mun minna fyrir hvern útskrifaðan nemanda við Háskólann á Bifröst en við ríkisháskóla. Þessum hugmyndum Félags prófessora í ríkisháskólum er því algerlega hafnað.