25. maí 2010
Tónlist, merking og aðferð
Laugardaginn 29. maí, kl. 10.00-12.00, verður haldin ráðstefna um tónlistarrannsóknir í Skála, í byggingu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð. Umfjöllunarefnið er tónlist og rannsóknir á tónlist.
Píanóleikarinn William Westney og tónlistarheimspekingurinn Cynthia M. Grund flytja erindi um „tónlistarflutning sem rannsóknarferli“ en þau eru á Íslandi í boði Háskólans á Bifröst og kenna þar námskeið um fjölháttamiðlun (multimodality) í samhengi tónlistar. Njörður Sigurjónsson, lektor við Háskólann á Bifröst, gerir grein fyrir rannsókn á fagurfræði tónleika og tilbrigði við tónleika sinfóníuhljómsveita; Helga Rut Gudmundsdottir lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands fjallar um rannsókn sína á þætti foreldra í tónlistarkennslu ungbarna; og Sigrùn Lilja Einarsdottir, doktorsnemi við Exeterháskóla, skýrir frá tónlistarfélagsfræðilegri rannsókn sinni á upplifun og reynslu kórmeðlima í Croydon Bach kórnum í London á flutningi H-moll messu e. J.S. Bach.
Ráðstefnan er samstarfsverkefni Háskólans á Bifröst, Listaháskóla Íslands og Menntavísindasviðs Háskóla Íslands og fer fram á ensku. Aðgagur er ókeypis og allir velkomnir.
Dagskrá:
William Westney and Cynthia M. Grund: "Musical Performance as a Process of Inquiry"
Njörður Sigurjónsson: "The Meaning of the Concert"
Helga Rut Gudmundsdottir: "Musical Parenting in Iceland: A Study with Young Mothers in a Parent-Infant Music Course"
Sigrùn Lilja Einarsdottir: "Bach in Everyday Life and the Experience of Performing 'Art Music': The Case of the Croydon Bach Choir in London Performing Bach´s Mass in B Minor.“
William Westney leikur einnig á tónleikum í Salnum í Kópavogi 28. maí klukkan 19.30.
(http://salurinn.is/default.asp?page_id=7502&event_id=8007)
Research Seminar: Music, Meaning and Method
10:00 a.m., Saturday, May 29, 2010
University of Iceland, Reykjavik. Venue: Skáli.
Nánari upplýsingar veitir
Njörður Sigurjónsson