Fréttir
5. júní 2010

Ágúst Einarsson gagnrýnir stjórnvöld við útskrift

Ágúst Einarsson gagnrýndi stjórnvöld harðlega við útskrift á Bifröst í dag og vill nýtt lýðveldi og beina kosningu framkvæmdavaldsins.
 
Í síðustu útskriftaræðu Ágústs Einarsson sem lét nú af störfum rektors sagði hann bestu leiðin fyrir Íslendinga út úr kreppunni væri að efla háskóla og hann gagnrýndi stjórnvöld fyrir að rífa niður háskólakerfið. Hann sagði helsta vanda Íslendinga vera fámennið og „þegar bættust við siðleysi, græðgi og glæpamennska nokkurra tuga manna í lykilstöðum í fjármálageiranum þá hrundi hið fámenna samfélag okkar eins og spilaborg“.

 

Ágúst taldi ekki víst að hægt væri að halda þjóðinni saman eftir þetta og hann tók undir hugmynd Njarðar P. Njarðvík að stofna ætti nýtt lýðveldi enda væri flokkakerfi 20. aldarinnar gjaldþrota. Ágúst kvaðst vilja að framkvæmdavaldið væri kosið beint eins og gert er í Bandaríkjunum og í Frakklandi að hluta og rifjaði upp hugmyndir Bandalags jafnaðarmanna og Vilmundar Gylfasonar.

 

Ágúst sagði að skólastarfið hefði gengið vel á Bifröst og gæði námsins aukist eins og kom fram í erlendri úttekt á þessu ári. Skólinn var rekinn með hagnaði á síðasta ári og það sem af er þessu ári. Umsóknir hafa aldrei verið fleiri en í fyrra og nemendur aldrei fleiri.

 

Ágústi voru færðar margvíslegar þakkir fyrir starf sitt fyrir Bifröst og mun skólinn m.a. halda sérstaka alþjóðlega ráðstefnu um menningu og viðskipti honum til heiðurs í haust. Magnús Árni Magnússon tók við rektorsstarfinu við þessa útskrift og var hann boðinn velkominn af þeim 400 gestum sem sóttu háskólahátíðina á Bifröst í dag.


Ræða Ágústs Einarssonar við útskrift í dag á Bifröst er hægt að sjá hér.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri