80 háskólanemar útskrifuðust í dag frá Háskólanum á Bifröst við hátíðlega athöfn. Nemendur útskrifuðust af viðskiptadeild, félagsvísindadeild og lagadeild. Við útskriftina lét Ágúst Einarsson af störfum sem rektor skólans en við tók Magnús Árni Magnússon. Magnús Árni er skólanum þaulkunnugur en hann var aðstoðarrektor Háskólans á Bifröst á árunum 2001-2006.
Í fyrstu ræðu sinni sem rektor vék Magnús Árni að þeirri erfiðu stöðu sem háskólar á Íslandi, og sérstaklega sjálfstæðir háskólar, standa frammi fyrir. Hann minnti á að saga Bifrastar spannar 92 ár, en á þeim tíma hafi skólinn gjarnan leitt breytingar í íslensku menntakerfi. „Slíkt er ekki til vinsælda fallið hjá þeim sem vilja helst sitja í friði, einir í krafti ríkisvalds, að því takmarkaða fjármagni sem íslenskt menntakerfi hefur úr að spila,“ sagði Magnús Árni. Hann sagði jafnframt að staðan byði upp á ýmis tækifæri til að endurhugsa samstarf háskóla, en í því verkefni ætti Bifröst að sýna frumkvæði í því að vinna að nánara samstarfi, án þess þó að glata þeim verðmætum sem felast í háskólastarfi á Bifröst.
Magnús Árni sagði að taka ætti lærdóma hrunsins inn í námið á Háskólanum á Bifröst, og vinna að því að efla samfélagslega meðvitund þeirra sem sem þar nema og starfa. „Þar byggjum við á góðum grunni þess náms sem hér er til staðar, en það hefur alltaf verið með öflugum samfélagsvinkli og aldrei dottið í þá gryfju að telja að hægt sé að líta á samfélagið eins og reiknilíkan verkfræðings, þar sem uppblásinn bólugróðinn er einn við völd svo eftir stendur sviðin jörð. Sálarlausum samfélagslíkönum höfnum við. Á Bifröst er maðurinn og samhengi hans á jörðinni í öndvegi,“ sagði Magnús í ræðu sinni.
Magnús þakkaði Ágústi Einarssyni, fráfarandi rektor fyrir gott starf í þágu skólans og það góða bú sem hann skilur eftir. „Fráfarandi rektor, dr. Ágúst Einarsson hefur, ásamt stjórn og starfsfólki skólans, eflt faglegt starf skólans og lyft grettistaki í fjármálum hans og stýrt honum í gegnum mesta gerningaveður sem lent hefur á íslensku samfélagi um langan aldur með þeim hætti að skólinn stendur sterkt fjárhagslega. Það er ekki lítið afrek,“ sagði Magnús í ræðu sinni.
Hér er hægt að nálgast ræðu Magnúsar Árna.
Um Magnús Árna Magnússon
Starfsferill:
- Rektor Háskólans á Bifröst frá 5. júní 2010
- Forstöðumaður Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands 2009-2010
- Aðjúnkt við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands frá hausti 2008
- Framkvæmdastjóri Skóla skapandi greina hjá Keili, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs 2008-2009
- Partner hjá Capacent 2006 - 2008
- Forseti félagsvísindadeildar á Bifröst 2005 - 2006
- Forseti viðskiptadeildar á Bifröst 2003 - 2005
- Aðstoðarrektor Viðskiptaháskólans á Bifröst 2001 - 2006
Menntun:
- Doktorsnám í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands frá 2001
- M.Phil. í Evrópufræði (European Studies) frá University of Cambridge, 2001
- MA í hagfræði frá University of San Francisco, 1998
- BA í heimspeki frá Háskóla Íslands, 1997