Fréttir
30. júní 2010

Könnun meðal frambjóðenda til Alþingis 2009 send út

Send hefur verið út könnun til allra frambjóðenda sem buðu sig fram til Alþingis vorið 2009. Í könnuninni eru frambjóðendur spurðir um afstöðu sína til þess hvert þeir telji að hlutverk kjörinna fulltrúa eiga að vera og um afstöðu sína til lýðræðis, auk spurninga um kosningabaráttuna og bakgrunn í stjórnmálum.

 

Það er markmið að könnun af þessu tagi verði send út til allra frambjóðenda eftir hverjar Alþingiskosningar hér á landi. Vonir standa til að slík könnun verði virkur hluti af pólitískri menningu og að frambjóðendur telji það vera hluta af sínu pólitíska starfi að svara slíkri könnun, þó þeim beri að sjálfsögðu ekki skylda til þess.

 

Könnunin er send út nafnlaus og ábyrgst er að svör verða ekki birt með persónugreinanlegum hætti. Ábyrgðarmaður könnunarinnar er Eva Heiða Önnudóttir, stjórnmálafræðingur og aðjúnkt við Háskólann á Bifröst. Auk hennar starfar Katrín Bjarney Guðjónsdóttir, nemi í lögfræði við könnunina.

 

Könnun þessi er gerð að erlendri fyrirmynd, the Comparative Candidate Survey - CSS (www.mzes.uni-mannheim.de/projekte/ccs), sem er hýst við Háskólann í Mannheim. Ef vel tekst til varðandi gagnaöflun og svörun verður góð verða íslensku gögnin hluti af alþjóðlega gagnasafninu í Mannheim.

  

Frekari upplýsingar veitir Eva Heiða Önnudóttir, í síma 433 3082 / 891 6993 eða með tölvupósti á netfangið evaheida@bifrost.is 

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri