Fréttir
3. ágúst 2010

Árbók verslunarinnar 2010

Út er komin Árbók verslunarinnar 2010 – hagtölur um íslenska verslun, sem Rannsóknasetur verslunarinnar gefur út í samstarfi við Kaupmannasamtök Íslands. Að venju eru í árbókinni viðamiklar tölfræðilegar upplýsingar um verslun hér á landi á síðasta ári. Bókin inniheldur ýmsar upplýsingar um ytri skilyrði verslunar, verðlag, umfang, vöxt einstakra tegunda verslunar,  afkomu hennar í heild og eftir landssvæðum.

 

Eftirtaldar upplýsingar má finna í árbókinni:

 

  • Velta í smásöluverslun árið 2009 var 294,5 milljarðar kr.

 

  • Samdráttur í veltu smásöluverslunar árið 2009 nam 11% að raunvirði frá árinu áður og frá árinu 2007 nam samdrátturinn alls 15,5%.

 

  • Árið 2009 var raunsamdráttur í byggingarvöruverslun um 45,5%, í raftækjaverslun 35,7% og 25,6% samdráttur í húsgagnaverslun.

 

  • Hlutur verslunar í landsframleiðslu var 10,5% árið 2009 og hefur haldist nokkuð stöðugur undanfarin áratug.

 

  • Árið 2009 störfuðu alls 21.200 manns við verslun á Íslandi, eða tæp 12,6% af heildarvinnuafli þjóðarinnar. Þar af voru karlar 12.600 en konur 8.600

 

  • Í janúar 2009 var fermetrafjöldi verslunarhúsnæðis á Íslandi 1.157.922 m2 eða 3,6 m2 hvern íbúa landsins.  Fermetrafjöldi verslunarhúsnæðis jókst um 6,6% frá sama tíma árið áður.

 

  • Heildarlaun afgreiðslufólks í sérvöru- og matvöruverslunum voru 238 þúsund að miðgildi árið 2009, samanborið við 370 þúsund ef horft er til allra starfsstétta.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri