Háskólinn á Bifröst verður settur miðvikudaginn 1. september 2010 kl. 9:00 í Hriflu, aðalsamkomusal skólans.Að setningu lokinni verður haldin stutt kynning á námsumhverfi og kennslu skólans. Eftir hádegi hefst sérstök dagskrá sem stendur til loka föstudagsins en almenn kennsla hefst, samkvæmt stundarskrá, mánudaginn 6.september.Nemendur í grunnnámi taka þátt í sýndarráðstefnu hjá Sameinuðu þjóðunum á vegum IceMun. Nemendum gefst þar kostur á að kynnast starfsemi Sameinuðu þjóðanna á nýstárlegan hátt.Eldri nemendur eru sérstaklega hvattir til að taka þátt í leiknum sem hefst formlega kl.13.00 í Hriflu.Þorvaldur Þorsteinsson, rithöfundur og myndlistarmaður og Helena Jónsdóttir dansari munu leiða frumgreinadeildina í samhristingi og hópefli sem hefst eftir hádegi í Aðalbóli, aðsetri frumgreinadeildar. Ítarlega dagskrá fyrir dagana 1. - 3. september er að finna hérKennsla hefst eins og áður sagði, samkvæmt stundaskrá, mánudaginn 6. september.Smelltu hér til að sjá stundaskrá fyrir allar deildir í staðnámi.Smelltu hér til að nálgast gagnlegar upplýsingar fyrir nýnema.Með kveðju,Magnús Árni Magnússon, rektor