Fréttir
27. janúar 2012

Hádegismálþing á Hverfisgötunni hefjast aftur nk. mánudag

Næstkomandi mánudag hefjast hádegismálþingin aftur í húsnæði skólans að Hverfisgötu 4-6. Málþingin voru mjög vinsæl fyrir jól og næstu mánudaga verður boðið upp á spennandi fyrirlestra.

 

Næstkomandi mánudag kemur Pétur Jóhannes Óskarsson, rannsakandi hjá CCP og EVE Online og MA í heimspeki og fjallar um mótmælaaðgerðir og pólítískan aktivisma í sýndarheimum.

 

Fyrirlesturinn ber titilinn: "Pólitískar aðgerðir og mótmæli í sýndarheimum. EVE Online og Occupy Wall Street".

Pétur Jóhannes er verkefnastjóri hins lýðræðislega kjörna fulltrúaráðs EVE Online spilara - þ.e. hann sér um hina lýðræðislegu innviði tölvuleiksins EVE Online. Á síðasta ári urðu umfangsmikil mótmæli meðal spilara í EVE Online, en spilarar mótmæltu breytingum sem fyrirtækið CCP hugðist gera á reglum og umgjörð leiksins. Þó þetta hafi ekki verið í fyrsta skipti sem íbúar þessa heims mótmæla þá voru mótmælin bæði umfangsmeiri en áður og vöktu meiri athygli en nokkru sinni fyrr. Mótmælin eru sérstaklega áhugaverð í ljósi atburða síðasta árs, þegar Occupy Wall Street hreyfingin sem átti uppruna sinn í Bandaríkjunum dreifðist um allan heim og hreyfingar internetaktivista á borð við Wikileaks og Anonymous létu til skara skríða gegn stjórnvöldum og stórfyrirtækjum.
Pétur mun fjalla um aðdraganda mótmælanna og viðbrögðum CCP auk þess að að fjalla um eðli mótmæla í sýndarheimum eins og EVE Online og þess hvaða grundvöllur er til pólitískra athafna í sýndarheimum. Þá mun hann reyna að draga lærdóm af EVE mótmælunum og reyna að yfirfæra á "raunheima" til að skerpa á spurningum sem kunna að vakna í sambandi við hreyfingar eins og Anonymous og Occupy Wall Street.

Boðið er upp á kaffi, smákökur og vitaskuld líflegar umræður!

 


Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri