22. febrúar 2012
Öskudagsskemmtun í dag
Í dag, miðvikudag, verður hin árlega öskudagsskemmtun. Öll börn velkomin og fullorðnir að sjálfsögðu líka.
Rútan kemur frá Varmalandsskóla á miðvikudaginn kl. 12:50 og kl. 13:05 ætlum við að slá „köttinn" úr tunnunni á háskólatorginu.
Eftir það fara börnin um svæðið og syngja fyrir íbúa. Við biðjum ykkur að taka vel á móti krökkunum og ekki verra ef þið eigið eitthvað til að bjóða þeim.
Rútan fer tilbaka á Varmaland kl. 14:30, þau sem búa á Bifröst verða eftir.
