Fundargerðir
Deildarfundir viðskiptadeildar, fundur nr. 42

Dags. 10.6.2010

Deildafundur Viðskiptadeildar 19.05.2010

 

Mættir: Jón Freyr Jóhannsson, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Kristín Ólafsdóttir, Einar Svanssson, Kári Joensen, Guðmundur Ólafsson, Stefán Kalmannsson, Stefán Svavarsson, Emil Karlsson, Signý Óskarsdóttir og Ásta Dís Óladóttir.
Forföll tilkynntu  fulltrúi nemenda, Margrét Rós Einarsdóttir og Guðrún Björg.

 

Dagskrá


Engin formleg dagskrá var send út fyrir fundinn heldur var markmiðið að fara yfir vormisserið og huga að haustmisserinu.


Vormisserið


Farið var yfir kennslu vormisseris sem gengið hefur nokkuð vel.  Lítið hefur borið á almennum kvörtunum nemenda á yfirstandandi skólaári.


Kennarar ræddu að nemendur mættu illa í tíma og það rætt ítarlega.  Stungið var upp á því að gerð yrði könnun meðal nemenda til þess að sjá hvað það er sem þeir eru að nýta og hvað ekki, hvað mætti betur fara osfrv.  Æskilegt að fá meistaranema til að vinna slíka könnun.


Stefán Svavarsson ræddi um sína fyrstu kæru á rúmlega 30 ára ferli sem háskólakennari.  Það var vegna námskeiðsins Stjórnunarbókhald.  Nemendur kærðu einkunn í prófinu.  Málið var á borði rektors sem fékk óháðan prófdómara til þess að meta og kom í ljós að hann staðfesti allar einkunnir kennara utan einnar.  Kennarar ræddu að það þyrfti að vera þannig fyrirkomulag í slíkum tilfellum að prófdómari fengi rökstuðning fyrir einkunn kennara ef það væri ágreiningur.


Markaðssetning


Kristín Ólafsdóttir kynnti markaðssetningu á ensku línunni og hvaða leiðir fara má.  Hún óskaði eftir því að allir þyrftu að vera þátttakendur í slíkri markaðssetningu en Kristín hefur verið í viðræðum við erlenda ráðgjafa á þessu sviði.


Vinnuhelgar


Rætt var um slaka mætingu á vinnuhelgar svo og þegar fög skarast.  Kennarar á þeirri skoðun almennt að lengja þurfi vinnuhelgar, hafa þær til sunnudags í stað laugardags frá og með næsta skólaári 2010-2011.


Eins var rætt um að nemendur skrái sig á netinu í hvaða kúrsa þeir hyggjast mæta í á vinnuhelgum svo kennarar geti undirbúið sig betur.


Rannsóknir


Rætt var um að kennarar hugi að mögulegum rannsóknaverkefnum fyrir fyrirtæki sem og að muna eftir þeim rannsóknasetrum og miðstöðvum sem nú þegar eru á Bifröst, svo sem RSV og Rannsóknamiðstöð Bifrastar sem er vel samkeppnishæf hvað varðar úthringi – kannanir ofl fyrir fyrirtæki.


Ritgerðir


Rætt var um að hafa skýrari ramma utan um ritgerðaskil í Viðskiptadeild. 
Hafa í raun 4 stig.  Nemendur skila
Rannsóknaáætlun
Milliskil til leiðbeinanda
Lokadrög til leiðbeinanda
Lokaskil til deildar
Á milli hvers stigs er ákveðinn tími sem líður og mun kennslusvið setja fram dagsetningar sem bæði nemendum og leiðbeinendum ber að virða.


Aðferðafræðikennsla


Rætt aftur um aðferðafræði kennsluna í deildinni.   Nauðsynlegt er að fá hinar deildirnar með ef kenna á aðferðafræði í stað tútortíma á miðvikudögum.  Þannig myndi að mati nemenda tíminn nýtast betur og ná mætti fram hagræðingu í kennslu.
Á fyrsta misseri yrði þá aðferðafræði hefðbundin, á öðru misseri kæmi second life kennsla, á þriðja misseri kæmi kúrs með Sirrý – 8 skrefin (CV gerð ofl) og á 4 önninni kæmi kúrs um ritgerðasmíð og slíkt.  Hver kúrs væri 6 ECTS einingar.  Þetta þyrfti að útfæra sem fyrst fyrir næsta skólaár ef af verður.  Eins var rætt um á sínum tíma að auka aðferðafræðikennsluna með svipuðu sniði í fjarnámi.  Þarf að skoða aftur með tilliti til vilja kennara.  Nemendur fengu kynningu á þessu fyrirkomulagi á vinnuhelgi og leist mörgum hverjum mjög vel á að fá kennslu í aðferðafræði í upphafi og svo aftur þegar nær liði að ritgerðasmíð. 


Fráfarandi deildarforseti, Ásta Dís Óladóttir, þakkaði kennurum og öðru starfsfólki fyrir samstarf síðustu 3ja ára og óskaði Stefáni Kalmannssyni velfarnaðar í stöðu forseta Viðskiptadeildar.

 

Fleira var ekki rætt og fundi slitið.



Til baka

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri