Fundargerð síðasta fundar
Samþykkt.
Reglugerðarbreytingar
Stjórn Háskólans á Bifröst samþykkti nýja reglugerð þann 6. september 2011. Reglugerðin tekur gildi við birtingu hennar. Rektor fór yfir breytingar á reglugerðinni og hvernig nýtt skipurit endurspeglast í henni. Núverandi reglugerð telur 55. greinar en nýja reglugerðin sem bíður birtingar er 39. greinar.
Stór hluti kaflans um kennslu og námsmat var tekinn út úr reglugerðinni og verður, að fengnu samþykki háskólaráðs, settur inn í gæðahandbók sem reglur um nám og kennslu. Með þessu er verið að aðgreina rekstrarlegt hlutverk háskólastjórnarinnar frá akademískri stjórnun skólans. Farið var yfir reglugerðina kafla fyrir kafla og breytingar ræddar.
Sérstaklega var bent á að prófamöguleikum fækkar úr þremur í tvo og um leið er tekin úr gildi reglan um að einkunn úr úrbótaprófi skuli ekki vera hærri en 5 það þýðir að hægt er að fá fulla einkunn úr úrbótaprófi.
Reglur um nám og kennslu
Ákveðið var að fresta afgreiðslu á reglum um nám og kennslu. Afgreiðslan mun fara fram á næsta háskólaráðsfundi.
Reglur um réttindi og skyldur nemenda lagðar fram til samþykktar
Aðstoðarrektor kynnti nýjar reglur um réttindi og skyldur nemenda. Ákveðið að fella niður síðustu setningu í 6. gr.
Reglur um réttindi og skyldur nemenda voru bornar upp til samþykktar, reglurnar voru samþykktar samhljóða.
Inntaka nýrra nemenda og upphaf skólaársins
Skráðir nemendur í háskóladeildum og frumgreinadeild eru 805. Aðsókn hefur aukist í grunnnámi og frumgreinadeild og fór fram úr björtustu vonum. Aðeins hefur dregið úr nýskráningu nemenda í meistaranám en inntaka nemenda í meistaranám lagadeildar er um áramót og því liggur aðsókn þar ekki fyrir nú.
Fjölskyldufólki á háskólasvæðinu hefur fjölgað og í kjölfarið er leikskólinn Hraunborg á Bifröst fullur með 59 börn og einnig varð fjölgun nemenda í Grunnskóla Borgarfjarðar á Varmalandi í haust.
MySchool innleiðing – Hjalti R. Benediktsson
Umsjónarmaður kennslukerfa fór í stuttu máli yfir það sem hefur verið að gerast í innleiðingunni undanfarnar tvær vikur og kynnti ýmsa möguleika inni í MySchool. Verið er að færa eldri gögn úr fyrir kerfum yfir í nýja kennslukerfið. Núna er verið að tvískrá upplýsingar bæði í nýja og gamla kerfið en það ætti að vera úr sögunni í lok þessa mánaðar.
Umræða varð um nafnabreytingar og möguleika til þess að birta tilkynningar á ákveðna nemendahópa.
Heimasíða skólans – Davíð Þ. Olgeirsson
Markaðsstjóri sagði frá breytingum á heimasíðu skólans og mikilvægi þess að hægt sé að koma skilaboðum til skila svo eftir sé tekið og að fréttir séu áberandi og aðgengi að upplýsingum betra. Hann sýndi nýju heimasíðuna og kynnti þá
möguleika sem hún gefur okkur. Ekki er um nýja síðu að ræða heldur er verið að færa til upplýsingar og birta þær á nýjan hátt. Heimasíðan verður sett í loftið í næstu viku.
Önnur mál
Fulltrúi nemenda spurði um breytingar á gjaldskrá sem varð um síðustu áramót og aftur núna í haust varðandi næturleigu á vistarherbergjum. Ákveðið að fá fjármálastjóra til þess að gera grein fyrir þessu á næsta fundi.
Fram kom að rekstrarkostnaður vegna húsnæðis á Bifrastarsvæðinu er mjög hár og það liggur fyrir að greina þarf hvar er hægt að ná þessum kostnaði niður og hvernig má aðskilja þennan rekstur frá annari starfsemi skólans.
Fulltrúi nemenda spurði hvort að breytingar verði á sumarskilum meistararitgerða. Fram kom að ekki er boðið upp á sumarskil á lokaritgerðum í meistaranámi á næstu sumarönn samkvæmt dagskrá skólaársins. Nemendur geta skipulagt skilin sín í samvinnu við leiðbeinanda en verða að skila ritgerð rúmum mánuði fyrir útskrift að hausti.
Ákveðið var að hafa háskólaráðsfund að viku liðinni. Fundurinn verður boðaður kl. 14.00