Í háskólastjórn sitja fimm menn. Samtök atvinnulífsins skipa þrjá, hollvinasamtök háskólans skipa einn og háskólaráð Háskólans á Bifröst skipar einn. Á sama hátt skal skipa hverjum stjórnarmanni varamann. Tveimur árum eftir skipun hvers stjórnarmanns fyrir sig fyrir lok ágústmánaðar það ár sem kjörið er skulu formaður háskólastjórnar og rektor fara fram á það við þann aðila sem í hlut á að skipað verði á ný og tekur ný stjórn við í septembermánuði. Við skipun skal þess gætt að meirihluti aðalmanna og varamanna sé hvorki í námi né föstum störfum við Háskólann á Bifröst. Undirskriftir meirihluta stjórnar skuldbinda stofnunina.
Háskólastjórn hefur yfirumsjón og eftirlit með öllum málefnum, eignum og rekstri háskólans í samráði við rektor. Hún ræður rektor til starfa og ákvarðar um starf hans og önnur stjórnunarstörf við skólann. Hún skipar dómnefndir vegna kennararáðninga og vegna framgangs kennara. Hún afgreiðir rekstraráætlun og ársreikning skólans og lætur gera ráðstafanir til að tryggja nauðsynlegt rekstrarfé. Háskólastjórn ræður löggiltan endurskoðanda fyrir skólann.
Stjórn háskólans skal standa vörð um tilgang og hlutverk hans samkvæmt samþykktum. Stjórnin skal ávallt virða faglegt akademískt sjálfstæði háskólans. Stjórnin ber ábyrgð á rekstri, fjárhag og eignum háskólans. Stjórnin setur háskólanum reglugerð í samræmi við samþykktir hans.
Stjórn Háskólans á Bifröst
Aðalmenn:
Guðsteinn Einarsson, formaður, kaupfélagsstjóri Kaupfélags Borgfirðinga, tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins.
Ásbjörn Gíslason, varaformaður, forstjóri Samskipa hf, tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins.
Ástráður Haraldsson, dósent, tilnefndur af Háskólaráði Háskólans á Bifröst.
Ómar Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samkaupa, tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins.
Kolfinna Jóhannesdóttir, skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar, tilnefnd af Hollvinasamtökum Bifrastar.