Mikilvægar reglur og tilkynningar

Á þessari vefsíðu eru birtar mikilvægar reglur og tilkynningar til nemenda og annarra sem málin varða

 

Yfirlit um birt efni:

Reglur fyrir notendur tölvukerfis Háskólans á Bifröst

Reglugerð skólans

Fyrirkomulag prófa í Háskólanum á Bifröst

Reglur um skil læknisvottorða

Tilkynning frá rektor - bann við neyslu áfengis eða annarra vímugjafa í skólahúsnæðinu.

Um reglur lánasjóðs íslenskra námsmanna

Reglur um endurgreiðslu skólagjalda

Verðlaunaveitingar við útskriftir frá Háskólanum á Bifröst

Reglur fyrir nemendur sem fara sem skiptinemar til erlendra háskóla

Reglur varðandi tölvukerfi, öryggisvörslu og áminningar, húsreglur og gátlisti vegna þrifa.

 

Reglur fyrir notendur tölvukerfis Háskólans á Bifröst

Um leið og nemendur innritast í Háskólann á Bifröst samþykkja þeir að hlíta reglum skólans er varðar tölvukerfi hans. Tölvudeild háskólans hefur umsjón og ber ábyrgð á öllum tækja- og tölvubúnaði skólans. Háskólinn á Bifröst er aðili að RHneti, sem er samstarfsnet háskóla og rannsóknarstofnana.Til viðbótar við sérreglur Háskólans á Bifröst er vísað til notkunarskilmála RHnets, en notendur kerfisins skulu kynna sér þessar reglur þar sem þeir eru ábyrgir samkvæmt þeim. Tölvudeild ber ábyrgð á tækni- og tölvuþjónustu við starfsmenn og nemendur.

  • Allir nemendur hafa aðgang að þráðlausu neti innan skólans og snúrutengdu neti í íbúðum á háskólasvæðinu.
  • Hver nemandi ber fulla ábyrgð á sínu notandanafni og notkun þess.  Ekki er heimilt að láta þriðja aðila  í té afnot að sínum aðgangi.
  • Nemendur fá úthlutað gagnasvæði og pósthólfi á netþjóni skólans og er stærð þeirra ákveðin af netstjóra.
  • Netstjóri fyrir hönd Háskólans á Bifröst áskilur sér rétt til að fara yfir, skoða og eyða gögnum og hugbúnaði á gagnasvæðum nemenda til að tryggja að reglum um notkun búnaðarins sé fylgt.
  • Bannað að senda, sækja eða geyma efni sem er bundið höfundarétti, og/eða annað ólöglegt efni.
  • Bannað er að nota (internet) tengingu skólans til miðlunar á ólöglegum skrám (peer-to-peer), t.d. tónlist, kvikmyndum o.fl.
  • Bannað er að setja inn hugbúnað og breyta uppsetningum á tölvum í eigu skólans nema með samþykki tölvu- og tæknisviðs.
  • Bannað er að nota tölvukerfi skólans til að senda fjöldapóst sem ekki tengist skólastarfinu.
  • Ef nemandi er ekki skráður í nám eða hættir námi á námsmisserinu þá missir hann notandanafn sitt og netfang þremur mánuðum eftir síðasta skóladag.

Brot á þessum reglum geta leitt til lokunar á aðgangi að tölvukerfi Háskólans á Bifröst. Sé um alvarlegt eða endurtekið brot að ræða, getur það endað með brottvísun úr Háskólanum á Bifröst.

 

Reglugerð skólans

Reglugerð skólans er grunnur í starfi skólans. Mikilvægt er að nemendur kynni sér hana. Þar kemur m.a. fram að gagnkvæm virðing, kurteisi og heiðarleiki skuli ríkja í samskiptum nemenda og starfsfólks skólans. Öllum í háskólasamfélaginu ber að standa vörð um heiður skólans. Nemendur og starfsfólk skulu forðast að aðhafast  nokkuð það í           háskólaþorpinu , námi sínu, kennslu eða framkomu innan og utan skólans sem er  þeim til vanvirðu eða álitshnekkis eða varpað getur rýrð á  nám þeirra, kennslu eða háskólann. 

 

Reglugerðin í heild

 

Fyrirkomulag prófa í Háskólanum á Bifröst

Fyrirkomulag prófa og reglur um próftöku

 

Reglur um skil læknisvottorða

Nokkuð er um að skilað er inn veikindavottorðum vegna forfalla í skyldutímum. Til að slík vottorð séu tekin til greina verður eftirfarandi að vera uppfyllt:

Vottorðið verður að vera dagsett og undirritað af lækni og skilað á skrifstofu skólans innan 4 virkra daga frá þeim degi er veikindi voru.

Þetta þýðir að sé nemandi veikur á mánudegi og getur ekki mætt í tíma sem honum ber verður hann að hafa samband við lækni og fá vottorð um veikindi sín og skila vottorðinu á skrifstofu skólans ekki seinna en á föstudegi þeirrar viku.

Ef nemandi er veikur á föstudegi ber honum að hafa samband við lækni og fá vottorð og skila því á skrifstofu skólans ekki seinna en á fimmtudegi næstu viku.

Ef fólk veikist á prófdegi eða rétt fyrir próf ber að skila læknisvottorði innan 4 virkra daga eins og lýst er að ofan.

Ekki er tekið við læknisvottorðum eða tekið tillit til læknisvottorða sem berast eftir þennan tíma.

 

Gildir frá og með vormisseri 2008. Kynnt í háskólaráði 28. nóvember 2007

 

 

Neysla áfengis er ekki heimil í skólahúsnæðinu

Öll neysla áfengis og annarra vímugjafa er óheimil í skólahúsnæðinu.

Ef um sérstök tilefni er að ræða skal leita til rektors sem getur veitt undanþágu frá ofangreindu.

Tilkynning frá rektor 29. júní 2007

 

Um reglur Lánasjóðs íslenskra námsmanna

Úthlutunarreglur Lánasjóðs íslenskra námsmanna 2008 - 2009

 

Reglur um endurgreiðslu skólagjalda

Settar hafa verið reglur varðandi endurgreiðslu skólagjalda. Skólagjöld eru ekki endurgreidd en þó geta nemendur sótt um endurgreiðslu á grundvelli neðangreindra tilvika. Ætli nemandi að sækja um endurgreiðslu skal hann senda erindi um það til viðkomandi deildarforseta þar sem ástæður eru tilgreindar. Óskir um endurgreiðslu skólagjalda eftir að kennsla er hafin á viðkomandi önn er ekki tekin til greina. Skólagjöld eru einungis endurgreidd ef:

  • Nemandi er skráður í ritgerð, ekkert ferli er farið í gang varðandi leiðbeinenda þá eru skólagjöld vegna ritgerðarinnar endurgreidd að fullu.
  • Nemandi breytir skráningu í námskeið þannig að það fækki einingum þá lækka skólagjöld sem því nemur einungis ef úrsögn berst til nemendaskráningar fyrir upphaf fyrsta kennsludags í viðkomandi fagi.

 

Kynnt í háskólaráði 14. mars 2007

 

Verðlaunaveitingar við útskriftir frá Háskólanum á Bifröst

Við hverja útskrift eru verðlaun veitt til nemanda með hæstu einkunn á síðustu önn í grunnnámi í hverri hinna þriggja háskóladeilda skólans og í fjarnámi í viðskiptadeild. Nemendur sem til greina koma eru enn í grunnnámi og verða að hafa lokið fullu námi á síðustu önn, eins og fullt nám er skilgreint á hverjum tíma, hvort sem um staðnám eða fjarnám er að ræða, og verða að hafa hlotið einkunn fyrir einstök námskeið. Verðlaunin eru í því formi að verðlaunahafinn þarf ekki að greiða skólagjöld á þeirri önn sem námsárangrinum var  náð á. Nemandi sem er í 2. sæti (3. sæti) fær 75% (50%) afslátt af skólagjöldum. Afsláttur reiknast ekki af fleiri einingum en sem nemur fullu námi. Afsláttur gengur upp í skólagjöld yfirstandandi annar eftir því sem hægt er en er greiddur út að öðru leyti.

Einnig eru veittar viðurkenningar í formi bókaverðlauna til útskriftarnema með hæstu einkunn í einstökum háskóladeildum. Auk þess eru veitt peningaverðlaun að fjárhæð 150.000 fyrir hæstu einkunn útskriftarnema í grunnnámi.

Einnig fær sá meistaranemi bókaverðlaun sem er með hæstu einkunn við útskrift og sá nemandi sem er með hæstu einkunn fyrir meistararitgerð.

Við útskrift í júní (september) fær sá nemandi sem útskrifast úr frumgreinadeild í staðnámi (fjarnámi) með hæstu einkunn afslátt sem nemur fullum skólagjöldum á næstu önn í grunnnámi í einni af háskóladeildum Háskólans á Bifröst. Sá nemandi sem er í 2. sæti (3. sæti) fær 75% (50%) afslátt á skólagjöldum á næstu önn í einni af háskóladeildum skólans. Afsláttur reiknast ekki af fleiri einingum en sem nemur fullu námi.

Allir verðlaunahafar, að því tilskildu að þeir hafi hlotið að minnsta kosti fyrstu einkunn, fá sæti á Bifrastarlistanum sem er listi yfir þá nemendur í Háskólanum á Bifröst sem hafa sýnt frábæran árangur í námi.

 

Kynnt í háskólaráði 14. mars 2007 og síðar.

  

Reglur fyrir nemendur sem fara sem skiptinemar til erlendra háskóla

Nýjar reglur hafa verið settar varðandi þá sem hafa hug á skiptinámi. Þeir þurfa að hafa lokið 39 – 45 einingum, hafa að lágmarki 7 í meðaleinkunn og vera með skólagjöld í skilum. Einnig þurfa skiptinemar að leggja fram 30.000 krónu tryggingu ef þeir ætla í skiptinám sem gjaldfellur ef hætt er við að fara.

Þessar reglur gilda frá og með skólaárinu 2007/2008.

 

Kynnt í háskólaráði 14. mars 2007

 

 

Reglur varðandi öryggisvörslu, húsreglur og gátlisti

Starfsreglur varðandi öryggisvörslu og áminningar á Bifröst

Húsreglur í íbúðum Nemendagarða

Gátlisti vegna þrifa á herbergjum og íbúðum Nemendagarða

Kynnt í háskólaráði 31. október 2007

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri