5. september 2009

Ræða dr. Ágústar Einarssonar rektors Háskólans á Bifröst
við útskrift 5. september 2009

 

Kæru útskriftarnemar, starfsfólk Háskólans á Bifröst, aðrir gestir

Þetta er hátíðisdagur í margvíslegum skilningi, útskrift og kaflaskipti í lífi ykkar, kæru útskriftarnemar. Það eru líka tímamót fyrir aðra gesti sem fagna hér þessum áfanga í lífi ástvina sinna. Stephan G. Stephansson, skáld Vestur-Íslendinga og okkar allra, kvað eitt sinn:

 

Sumri þínu ef vel þú verð
verka til, sem manndáð sýna,
ellihaust þitt heiðri krýna
manndómsárin mikilsverð.

 

Núna eru einmitt manndómsárin ykkar að hefjast. Sýnið manndáð og verið ykkur sjálfum, fjölskyldum ykkar, landi og þjóð og Bifröst, skólanum ykkar, til sóma. Ég ætlast ekki til minna af ykkur.

 

Það verður ekkert auðvelt nú um stundir og hin réttu orð okkar skólamanna að best sé að menntun sé sett í forgang eru einskis virt. Í marglofuðum, svokölluðum stöðugleikasáttmála frá því í vor milli aðila vinnumarkaðar með dyggum stuðningi ríkisstjórnar eru tvö orð sem ekki koma þar fyrir. Þessi orð eru menntun og skóli. Þetta eru skilaboð til okkar sem starfa í skólakerfinu að enn og aftur er menntun ekki gefinn gaumur. Það er þannig hjá núverandi stjórnvöldum og var eins hjá þeim síðustu og þar síðustu stjórnvöldum. Áður komust þær þjóðir sem settu menntun í forgang fyrr út úr erfiðleikum sínum eins og Finnar. Við Íslendingar förum ekki þá leið og það er miður og í raun með öllu óskiljanlegt. Metnaðarleysi núverandi og fyrrverandi stjórnvalda í menntamálum mun verða okkur dýrkeypt og mun dýpka kreppuna og lengja.

 

Helsta ástæðan fyrir erfiðleikum okkar núna er fámennið. Við erum alltof fámenn til að manna þá innviði og stofnanir sem þarf í nútíma þjóðfélagi, meðal annars með því eftirliti sem þarf. Fámennið orsakaði sömuleiðis spillt kunningjasamfélag þar sem tengslin og klíkur réðu ríkjum. Því fór sem fór og fámennið verður helsta ástæðan fyrir því að það verður erfitt að ná aftur til lands. Við getum ekki mannað nógu vel ráðandi stöður. Okkar vantar einfaldlega fólk. Þið, kæru útskriftarnemar, getið lagt hönd á plóg og gerið það með sóma en meira þarf til.

 

Við verðum að horfast í augu við staðreyndir og láta af ofurdrambi og ofmetnaði okkar sem þjóðar. Við teljum okkur ákaflega merkilega en við erum það ekki. Það er mikill munur á metnaði og ofmetnaði.

 

Maðurinn er síður en svo fullkominn og græðgi, ein af sjö dauðasyndum fortíðar, hefur ráðið ríkjum hér um árabil. Þeir sem hafa hneppt börn þessa lands í skuldafjötra hafa enga afsökun og ég gef ekkert fyrir afsökunarbeiðni þeirra. Stjórnendur, stjórnarmenn og stærstu hluthafa ber að dæma eftir lögum. En þessa einstaklinga ber einnig að dæma eftir siðferðismati þjóðarinnar og sá dómur ber að vera harður. Ábyrgð þessara manna er mikil og þjóðin og sagan mun aldrei gleyma hlut þeirra í þessu mesta kerfishruni Íslandssögunnar.

 

Háskólinn á Bifröst hefur brugðist við þessum breyttu aðstæðum. Starfsfólki hefur verið fækkað og starfsmenn hafa tekið á sig launaskerðingu. Það er mjög gott starfsfólk hér og okkar aðgerðum er lokið og við erum á beinni braut. Skólinn er rekinn með hagnaði það sem af er þessu ári, við höfum lækkað húsleigu verulega, góð aðsókn er að skólanum og í engu hefur verið slakað á kröfum til nemenda og kennara. Þvert á móti. Gæði hafi aukist og við vitum að ykkur útskriftarnemum mun farnast vel. Þið hafið það besta veganesti sem til er, góða menntun.

 

Stjórnvöld verða að sýna jafnræði í niðurskurði til háskóla eins og þau hafa boðað, þ.e. 1% niðurskurður í ár og 8,5% niðurskurður á næsta ári. Við höfum unnið eftir þessum boðskap og lagað okkur að honum. Aðrir verða að gera slíkt hið sama.

 

Við útskrift í sumar kynnti ég áform um að Háskólinn á Bifröst, Listaháskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík kanni stofnun nýs háskóla á grunni þessara þriggja háskóla. Ekkert verður af þessari fyrirætlan þar sem stjórn Listaháskólans var ekki reiðubúin í slíkar viðræður. Það er miður en ekkert er við því að segja. Engar sameiningar eru því á döfinni hvað Háskólann á Bifröst varðar og við munum halda ótrauð áfram að gera góðan skóla betri. Auðvitað verður áfram gott samstarf við aðra háskóla.

 

Í sumar gerðum við könnun meðal landsmanna og nemenda skólans og við getum verið ánægð með niðurstöðurnar. Mjög gott viðhorf er gagnvart skólanum hjá landsmönnum og langflestir nemendur telja væntingar sínar hafa verið mjög vel uppfylltar og myndu mæla með námi við skólann við aðra. Við erum á réttri leið með ykkur kæru útskriftarnemar, starfsfólk og aðrir gestir.

 

Lao-Tse sagði í Bókinni um veginn fyrir eitt þúsund og fimm hundruð árum:

 

Með hógværð get ég verið djarfur.
Með sparsemi get ég verið örlátur.
Með lítillæti get ég hlotið hinn æðsta heiður.


En nú á tímum hirða menn ekki um hógværð og eru fullir frekju; þeir hirða ekki um sparsemi og eru allir í eyðslusemi; þeir eru horfnir frá lítillæti og keppa um tignarsæti. En þetta er vegur dauðans.

 

Tilvitnun lýkur. Þessi vitringur hafði rétt fyrir sér. Sýnið hógværð, sparsemi og lítillæti. Þá mun ykkur farnast vel.

 

Þakka ykkur fyrir  og Guð blessi ykkur öll. Hátíðinni er slitið.
 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri